Undanúrslitin í Evrópudeildinni og í Sambandsdeildinni fóru af stað í kvöld en um er að ræða fyrri leikina en þeir síðari fara fram í næstu viku.
Í Evrópudeildinni stefndi allt í tap Juventus á heimavelli þegar hið sterka Evrópu-lið, Sevilla mætti í heimsókn og komst í 0-1. Youssef En-Nesyri skoraði fyrsta markið eftir tæpan hálftíma leik.
Allt stefndi í sigur Sevilla en Federico Gatti jafnaði leikinn fyrir heimamenn á 97 mínútu.
Í hinum leiknum vann Roma 1-0 sigur á Leverkusen þar sem Edoardo Bove skoraði eftir stoðsendingu frá Tammy Abraham.
Í Sambandsdeildinni vann West Ham 2-1 sigur á AZ Alkmaar eftir að hafa lent undir, Saïd Benrahma jafnaði leikinn með marki úr vítaspyrnu á 67 mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Michail Antonio og kom West Ham yfir.
Í hinum leiknum gerðu vann Basel 1-2 sigur Fiorentina á útivelli.