Það er áhugi á Mahmoud Dahoud, leikmanni Dortmund, frá ensku úrvalsdeildinni.
Hinn 27 ára gamli Dahoud er miðjumaður sem hefur verið á mála hjá Dortmund síðan 2017.
Kappinn hefur verið í algjöru aukahlutverki hjá Dortmund á þessari leiktíð, þar sem Dortmund er í hörkutitilbaráttu við Bayern Munchen, og er samningur hans að renna út.
Það er því ljóst að hann er á förum.
Það er áhugi á Dahoud í ensku úrvalsdeildinni sem og í Serie A á Ítalíu.
Dahoud á að baki tvo A-landsleiki fyrir hönd Þýskalands.
Mahmoud Dahoud will make a decision on his future club soon. Premier League clubs approached him over free deal and looks most likely destination — while there’s interest also from Serie A. 🇩🇪 #transfers
Dahoud will leave Borussia Dortmund as free agent in the next weeks. pic.twitter.com/PVfiKMBcv8
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 11, 2023