Ferran Torres framherji Barcelona er klár í það að ganga í raðir Aston Villa í sumar. Enskir miðlar fjalla um málið.
Þessi 23 ára gamli Spánverji er á óskalista Unai Emery fyrir sumarið.
Barcelona keypti þennan knáa sóknarmann fyrir rúmu ári síðan en hann hefur ekki fest sig í sessi.
Barcelona þarf að lækka kostnað og sækja sér fjármuni í sumar, sala á Torres gæti verið liður í því.
Barcelona borgaði ansi háa upphæð þegar félagið keypti Torres frá Manchester City í janúar árið 2022 en nú gæti hann komið aftur til Englands.