Alfie Haaland faðir Erling Haaland var vísað af Santiago Bernabeu í gærkvöldi. Real og City höfðu þá gert 1-1 jafntefli í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Haaland sem er í dag umboðsmaður Erling var í einkastúku á vellinum en var vísað af henni og fylgt út af vellinum.
Alfie er sakaður um að hafa niðurlægt stuðningsmenn Real og kastað í þá mat.
Alfie var sjálfur leikmaður City en hann lék einnig með Leeds en leikurinn í gær var fyrri leikur liðanna.
Myndband af þessu er hér að neðan.
Alfie Haaland is seen being escorted from the Bernabeu last night, following an altercation with Real Madrid fans during their Champions League semi-final against Man City ⚽🏆 pic.twitter.com/NSrsKDWyzc
— Sky Sports News (@SkySportsNews) May 10, 2023