Telegraph segir frá því að Newcastle United ætli í sumar að reyna að kýla aftur á það að fá James Maddison miðjumann Leicester.
Forráðamenn Leicester eru sagðir meðvitaðir um að Maddison fari í sumar, sama hvort Leicester falli eða ekki.
Newcastle hefur undanfarið ár sýnt Maddison áhuga en Leicester ekki viljað selja.
Búist er við að Manchester United og fleiri lið muni einnig sýna áhugaen Newcastle virðist efst á blaði.
Newcastle virðist á leið í Meistaradeildina sem gefur félaginu meiri fjármuni á markaðanum.