Liverpool er að ganga frá ráðningu á Jorg Schmadtke sem nýjum yfirmanni knattspyrnumála. Býst félagið við að ráða hann inn á næstu dögum.
Schmadtke mun taka við af Julian Ward sem hefur sagt starfi sínu lausu og lætur af störfum í sumar.
Ward ákvað í nóvember að hætta en Liverpool hefur undanfarna mánuði verið að skoða kostina sem í boði eru.
Schmadtke hefur unnið þessu sömu störf hjá Aachen, Koln og VfL Wolfsburg í Þýskalandi.
Jurgen Klopp var með í ráðum þegar Schmadtke var ráðinn og hafði mikið um það að segja að FSG eigendur félagsins vilja nú ráða Schmadtke.