fbpx
Mánudagur 03.mars 2025
433Sport

Gary Neville með hárblásarann á lofti en kemur með athyglisverða spá – „Þetta hefur verið algjör óreiða frá degi eitt“

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 4. maí 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United goðsögnin Gary Neville lætur Todd Boehly, einn eiganda Chelsea, fá það óþvegið í hlaðvarpi sínu.

Chelsea hefur verið í algjöru rugli á leiktíðinni og er fyrir neðan miðja deild þegar lítið er eftir af ensku úrvalsdeildinni.

Frá því Boehly fékk lyklana hefur félagið eytt 600 milljónum punda í nýja leikmenn. Lítið hefur hins vegar gengið upp innan vallar.

Neville var sérstaklega viðboðið að sjá frammistöðu Chelsea í 3-1 tapi gegn Arsenal í vikunni.

„Ég hef aldrei séð lið sem er svo gott á pappír spila svona illa. Þetta var skammarlegur fyrri hálfleikur. Aumkunarverður,“ segir Neville.

„Þarna voru heimsmeistarar, landsliðsmenn, svo dýrir leikmenn að ég trúi því ekki. Frank Lampard hlýtur að hugsa það sama.“

Svo sneri Neville sér að Boehly. „Þetta byrjar á toppnum. Þetta hefur verið algjör óreiða frá degi eitt. Boehly hefur staðið sig hræðilega hingað til og misskilið deildina en ég er viss um að hann geti lært fljótt. 

Það sem hefur gerst á þessari leiktíð er allt á honum. Hann þurfti að halda knattspyrnudeildinni á sínum stað. Hann er ekki þar. Þú er eigandi, ekki leikmaður eða þjálfari. Þú hefur enga reynslu af þessari deild þannig vertu á þínum stað og leyfðu öðrum sem hafa rekið félagið svo vel í tíu ár að gera það.“

Neville bendir á að Boehly hafi breytt miklu á bak við tjöldin hjá Chelsea og segir það ekki hafa verið það rétta í stöðunni.

„Petr Cech fór, Marina Granovskaia fór, Thoamas Tuchel var látinn fara eftir nokkra leiki. Allt í einu fóru þeir að gefa 22 ára leikmönnum átta ára samninga. Þegar þú rekur vallarstarfsmenn, sjúkraþjálfara, íþróttafræðinga, stjórnarmenn, þjálfara ertu að henda þeim undir vagninn og segja að þetta sé þeim að kenna en ekki þér.

Chelsea var vel rekið félag. Þetta er það sem Boehly hefur nú búið til. Það er eins og hann sé að spila Football Manager. Þetta hefur verið hrein skelfing.“

Þrátt fyrir skelfilegt gengi á leiktíðinni telur Neville hins vegar að Chelsea geti hafnað í efstu þremur sætum ensku úrvalsdeildarinnar á næstu leiktíð.

„Ég held að einhver gæti mótað þá í gott lið sem berst um topp fjóra og titla.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Enski bikarinn: Manchester United tapaði í vítakeppni

Enski bikarinn: Manchester United tapaði í vítakeppni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Telur að Kompany henti Bayern betur en Guardiola

Telur að Kompany henti Bayern betur en Guardiola
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Amorim stendur með sínum manni: ,,Hann á skilið að vera í landsliðinu“

Amorim stendur með sínum manni: ,,Hann á skilið að vera í landsliðinu“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Frændi Gabriel skrifar undir hjá Chelsea

Frændi Gabriel skrifar undir hjá Chelsea
433Sport
Í gær

Liverpool og Arsenal í harðri baráttu

Liverpool og Arsenal í harðri baráttu
433Sport
Í gær

Fékk ekkert símtal frá Mourinho eftir komu til landsins

Fékk ekkert símtal frá Mourinho eftir komu til landsins
433Sport
Í gær

Arsenal seldi óþekktu markavélina á fjórar milljónir – Þrjár þrennur í sjö leikjum

Arsenal seldi óþekktu markavélina á fjórar milljónir – Þrjár þrennur í sjö leikjum