fbpx
Þriðjudagur 24.desember 2024
433Sport

Sigmundur Davíð um mál Gylfa: „Þetta á ekki að geta gerst“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 14. apríl 2023 14:57

Sigmundur Davíð tjáir sig um mál Gylfa á Facebook-síðu sinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að meðferðin sem Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, mátti þola í Bretlandi hafi verið ómannúðleg.

Sigmundur gerir mál hans að umtalsefni í pistli á Facebook-síðu sinni. Greint var frá því í morgun að Gylfi væri laus allra mála í Bretlandi en saksóknarar töldu að ákæra væri ekki líkleg til sakfellingar. Var málið því látið niður falla en Gylfi hefur verið í farbanni í Bretlandi í nærri tvö ár.

Sigmundur Davíð er ómyrkur í máli á Facebook-síðu sinni.

„Þetta á ekki að geta gerst. Maður var handtekinn og svo settur í farbann og lá undir grun í nærri tvö ár. Aldrei kom fram nákvæmlega um hvað hann væri grunaður en það þó sett í flokk með einhverju versta afbroti sem fólk getur hugsað sér,“ segir Sigmundur Davíð.

Hann rifjar upp að Gylfi hafi misst vinnu sína og ástríðu, andlit og nafn hans verið afmáð og drifið í að fjarlægja vörur úr verslunum sem tengdust honum á einhvern hátt.

„Íslendingar urðu fyrir miklu áfalli, börn og unglingar landsins misstu eina helstu hetju sína. Landsliðið sem hafði unnið glæsta sigra, sem fylltu okkur stolti og gleði, lenti í uppnámi og náði ekki lengur þeim árangri sem vænst var.“

Hann bendir svo á að mánuð eftir mánuð hafi ekkert verið að frétta af málinu; maðurinn, fjölskylda hans og vinir mátt þola stöðuga bið við hræðilegar aðstæður í nærri tvö ár.

„Það er mikilvægt að réttarkerfið taki ásakanir föstum tökum en það er ómannúðlegt, bæði gagnvart ákærendum og sakborningum, að mál fái að dragast von úr viti. Ekki hvað síst þegar hinir grunuðu þurfa að þola mikla refsingu á meðan.“

Sigmundur Davíð segir að þetta sé ekki bara raunin í Bretlandi.

„Á Íslandi hefur fólk mátt þola óforsvaranlega bið eftir niðurstöðu og oft verið álitið sekt í millitíðinni. Vesturlönd þurfa að rifja upp grundvallarreglur réttarríkisins. Bæði hvað varðar meðferð mála og regluna sem áður var algild: Fólk telst saklaust þar til sekt er sönnuð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Saka ekki sá eini sem verður frá í töluverðan tíma

Saka ekki sá eini sem verður frá í töluverðan tíma
433Sport
Í gær

Víkingur kaupir Stíg frá Ítalíu

Víkingur kaupir Stíg frá Ítalíu
433Sport
Í gær

Eggert Gunnþór skrifar undir nýjan samning

Eggert Gunnþór skrifar undir nýjan samning
433Sport
Í gær

Þetta er nú óvænt líklegasti áfangastaður Rashford

Þetta er nú óvænt líklegasti áfangastaður Rashford
433Sport
Í gær

Logi Hrafn samdi í Króatíu

Logi Hrafn samdi í Króatíu
433Sport
Í gær

Þessi tíu eru tilnefnd til íþróttamanns ársins – Fjögur úr fótboltanum

Þessi tíu eru tilnefnd til íþróttamanns ársins – Fjögur úr fótboltanum