Lið Chelsea er búið að staðfesta komu vængmannsins Mykhailo Mudryk frá Shakhtar Donetsk.
Mudryk kotar Chelsea um 100 milljónir evra en hann var lengi skotmark Arsenal í þessum glugga.
Arsenal neitaði þó lengi að borga eins hátt verð og Chelsea sem hafði því betur að lokum.
Chelsea staðfesti komu Mudryk á heimasíðu sinni í dag en hann gerir samning til ársins 2030.
Um er að ræða 22 ára gamlan leikmann sem býr yfir miklum hraða og er mjög hættulegur fram á við.