Bakvörðurinn Diogo Dalot vill augljóslega ekki yfirgefa Manchester United eftir nýjustu ummæli hans.
Dalot átti að verða samningslaus í júní á þessu ári en Man Utd virkti klásúlu í samningi hans sem framlengdi samninginn um eitt ár.
Það er þó óvíst að þessi 23 ára gamli leikmaður eigi frekari framtíð fyrir sér á Old Trafford.
Það fer þó alveg eftir því hvort Erik ten Hag vilji fá nýjan hægri bakvörð inn en hann hefur treyst á Portúgalann hingað til.
Dalot er í uppáhaldi hjá Ten Hag og hefur spilað 22 leiki í öllum keppnum á tímabilinu.
,,Við erum að ræða málin, við erum í viðræðum og sjáum hvernig þetta hentar báðum aðilum,“ sagði Dalot.
,,Það er ekkert leyndarmál að ég elska að vera hér. Ég elska þetta félag og elska að spila fyrir það. Við sjáum hvernig framhaldið verður en við erum á leið í góða átt.“