Antony er orðinn leikmaður Manchester United. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Manchester United. Þessi fjölhæfi miðjumaður skrifar undir samning til ársins 2027 og hittir fyrir fyrrum knattspyrnustjóra sinn Erik ten Hag hjá félaginu.
Antony kemur frá Ajax. Hann hefur skorað 31 mark og gaf 27 stoðsendingar í 137 leikjum með Ajax og San Paulo. Þá á hann að baki 9 leiki fyrir brasilíska landsliðið.
„Þetta er ótrúleg stund á ferli mínum að ganga til liðs við einn af þekktustu klúbbum heims. Ég er þakklátur öllum sem hafa haft trú á mér, sérstaklega fjölskyldu minni, og öllum þjálfurum mínum og liðsfélögum, því ég hefði ekki getað komist hingað án þeirra.“
Reunited.
EtH 🤜🤛 @Antony00 #MUFC pic.twitter.com/8le96MZnhk
— Manchester United (@ManUtd) September 1, 2022
Fréttin verður uppfærð