Fjölmiðlamennirnir Helgi Seljan og Guðmundur Benediktsson ræddu málin á Twitter í kvöld eftir leik ÍBV og FH í Bestu deild karla.
FH hefur verið í raun vonlaust í allt sumar og hefur ekki unnið leik í efstu deild síðan 25. apríl.
Ólafur Jóhannesson var fyrr í sumar rekinn frá félaginu og tók Eiður Smári Guðjohnsen við en lítið hefur breyst með hans komu.
FH mætti til Vestmannaeyja í dag og tapaði 4-1 og er í harðri fallbaráttu í efstu deild sem er mjög óvænt.
,,Þetta er svakalegt. Það er bara eitthvað alveg sögulegt lánleysi og þrot í gangi. Alveg vonlaust að ætla að hengja það á einn mann, hvað þá þann sem er ný tekinn við,“ skrifar Helgi við færslu Gumma Ben sem talar um að vandræði FH séu ekki að minnka.
Helgi telur að það sé óásættanlegt að skella skuldinni á Eið eða þjálfara FH en lánleysið innan liðsins virðist vera töluvert.
FH er einu stigi frá fallsæti en Leiknir Reykjavík er sæti neðar og á tvo leiki til góða.
Þetta er svakalegt. Það er bara eitthvað alveg sögulegt lánleysi og þrot í gangi. Alveg vonlaust að ætla að hengja það á einn mann, hvað þá þann sem er ný tekinn við.
— Helgi Seljan (@helgiseljan) August 14, 2022
Það þarf að kalla til særingamann í Kaplakrika. Þetta er eitthvað svoleiðis dæmi.
— Helgi Seljan (@helgiseljan) August 14, 2022