Benoit Badiashile er á óskalista Chelsea.
Það er talið að þessi 21 árs gamli miðvörður Monaco gæti haldið til Lundúnafélagsins fyrir meira en 35 milljónir punda.
Vegna frétta af Badiashile hafa ensk götublöð rifjað upp skondið atvik sem eitt sinn átti sér stað og Badiashile átti hlut í.
Það var árið 2018 sem hann var á blaðamannafundi ásamt Thierry Henry, Arsenal-goðsögn og þá stjóra Monaco.
Eftir fundinn gleymdi Badiashile sér aðeins. Hann setti stól sinn ekki eftir undir borð.
Þetta var Henry allt annað en sáttur með og kenndi drengnum unga mannasiði fyrir framan alla.
Þetta skondna atvik má sjá hér að neðan.