Hjörvar Hafliðason skellti sér til Katar á úrslitaleik Heimsmeistaramótsins á milli Argentínu og Frakklands um helgina. Hann sagði fersögu í hlaðvarpi sínu, Dr. Football.
Argentína varð heimsmeistari eftir frábæran úrslitaleik við Frakkland. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 og eftir framlengingu var hún 3-3. Argentínumenn unnu svo í vítaspyrnukeppni.
„Það var áhugavert hvað allt var hreint þarna. Þetta var lygilegt,“ segir Hjörvar um Katar.
„Það eru allir á Land Cruiser. Það er örugglega bara á Íslandi þar sem hlutfallið er jafnhátt.“
Hjörvar hrósar samgöngukerfinu í Katar. „Allar samgöngur þarna eru upp á ellefu. Lestarnar eru þannnig að það er nánast þrifið eftir hvern mann. Ég mun aldrei aftur geta farið í neðanjarðarlest í London eftir þetta.“
Þegar úrslitaleikurinn var spilaður, þann 18. desember, var þjóðhátíðardagur Katar. Því voru barir og verslanir lokaðar. „Þú hefðir þurft að þekkja Emírinn sjálfan til að fá þér einn kaldan,“ segir Hjörvar og bætir jafnframt við að skipulagið í kringum úrslitaleikinn hafi verið frábært.
Argentísku stuðningsmennirnir voru í miklum meirihluta í stúkunni en þega Frakkar jöfnuðu í 2-2 með tveimur mörkum seint í venjulegum leiktíma slokknaði aðeins á þeim að sögn Hjörvars.
„Þeir voru algjörlega dauðir fyrir framlenginguna, algjörlega búnir á því,“ segir hann, en Argentínumenn gátu tekið gleði sína á ný í leikslok.
Sheikh Tamim bin Hamad Al Thani var vinsæll á leikvanginum en það var forseti FIFA hins vegar ekki.
„Þegar Infantino var kynntur til leiks var púað mikið. Það þorði enginn að gera það þegar Emírinn var kynntur,“ segir Hjörvar Hafliðason.