Það styttist verulega í að úrslitaleikur HM í Katar fari fram en hann verður leikinn á sunnudaginn.
Þar mætast tveir risar í Argentínu og Frakklandi en bæði lið hafa átt gott mót hingað til.
Það eru ekki allir sem vita hver dómari leiksins er en hinn 41 árs gamli Szymon Marciniak fær verðugt verkefni í úrslitaleiknum.
Marciniak hefur verið opinber dómari fyrir FIFA síðan 2013 og hóf feril sinn sem dómari í efstu deild Póllands árið 2009.
Marciniak hefur dæmt tvo leiki á mótinu hingað til, einu sinni fyrir Frakkland og einu sinni fyrir Argentínu.
Hann var fá flautunni í 2-1 sigri Frakklands á Danmörku í riðlakeppninni og í 16-liða úrslitujm er Argentína vann Ástralíu, 2-1.
Hingað til hefur Marciniak ekki dæmt eina vítaspyrnu á mótinu og ekki gefið rautt spjald en fimm gul spjöld hafa farið á loft.