fbpx
Laugardagur 01.mars 2025
433Sport

Færsla Gísla Marteins veldur úlfúð – „Augljóst að sú ákvörðun þín hefur orðið til þess að þér var hent af dagskrá“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. desember 2022 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vikan með Gísla Marteini verður ekki á dagskrá RÚV í kvöld vegna leiks Argentínu og Hollands á Heimsmeistaramótinu í Katar.

Þetta hefur pirrað suma og einhverjir netverjar hafa látið í sér heyra.

Rétt að minna á að vegna HM fellur Vikan niður í kvöld. Lofum þrútnum og sykursætum jólaþætti eftir viku, 16. des, skrifar Gísli Marteinn á Twitter-reikning sinn.

„Ekkert svona! Hringir bara í Qatar og segir þeim að sjónvarpa Vikunni þaðan í staðinn fyrir þessa tuðru!“ skrifar einn undir færslunni.

„Neeeiii, ekki mannréttindabrotabolti í staðin fyrir ykkur,“ skrifar önnur.

Þá blandaði Helgi Seljan, blaðamaður á Stundinni, sér í umræðuna og sló á létta strengi.

„Segir okkur það. Augljóst að sú ákvörðun þín að gera grín að Hitler og hans skoðunum, sem eðlilega særði fullt af fólki, hefur orðið til þess að þér var hent af dagskrá,“ skrifar Helgi og vísar þarna í brandara Gísla í síðasta þætti.

Leikur Argentínu og Hollands er liður í 8-liða úrslitum HM. Hefst hann klukkan 19 í kvöld að íslenskum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leikmenn United reiðir út í Amorim en þora ekki að ræða við hann

Leikmenn United reiðir út í Amorim en þora ekki að ræða við hann
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Skellir fram samæriskenningu um Bonnie Blue – Telur hana vera að vinna fyrir Zelenskyy

Skellir fram samæriskenningu um Bonnie Blue – Telur hana vera að vinna fyrir Zelenskyy
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íslenskur landsliðsmaður í fótbolta ætlaði að berja öfluga blaðamanninn – „Það fauk í hann“

Íslenskur landsliðsmaður í fótbolta ætlaði að berja öfluga blaðamanninn – „Það fauk í hann“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Völdu kynþokkafyllsta knattspyrnumann í heimi – Valið kemur á óvart

Völdu kynþokkafyllsta knattspyrnumann í heimi – Valið kemur á óvart