fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
433Sport

Arnar Þór velur nýjan landsliðshóp – Sverrir Ingi og Jóhann Berg snúa aftur

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 8. nóvember 2022 12:43

Arnar Þór Viðarsson. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari A karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í Baltic Cup í nóvember.

Jóhann Berg Guðmundsson kantmaður Burnley snýr aftur í hópinn en rúmt ár er síðan hann lék síðast með landsliðinu. Alfreð Finnbogason og Guðlaugur Victor Pálsson eru ekki með vegna meiðsla.

Þetta er seinna nóvember verkefni A karla, en liðið er nú statt í Suður Kóreu þar sem það mætir heimamönnum í vináttuleik á föstudag.

Á mótinu leika fjórar þjóðir og eru þær Eistlandi, Lettland, Litháen og Ísland. Ísland mætir Litháen í undanúrslitum 16. nóvember. Liðið mætir svo Eistlandi eða Lettlandi 19. nóvember.

Sverrir Ingi Ingason er einnig mættur aftur í hópinn en hann lék síðast með landsliðinu fyrir um 20 mánuðum síðan. Albert Guðmundsson er áfram í kuldanum.

Aðspurður sagði Arnar Þór Viðarsson, þjálfari A landsliðs karla að sér lítist vel á mótið. „Mér líst mjög vel á þetta Baltic Cup verkefni, frábært að fá mótsleiki í stað vináttuleikja. Eins og við vitum þá breytir það alltaf leikjunum ef það er að einhverju að keppa. Mér skilst að þetta sé mót sem var fyrst haldið fyrir hátt í hundrað árum og það er bara mikill heiður fyrir okkur að fá boð frá þessum vinaþjóðum okkar um þátttöku sem gestalið,“ segir Arnar Þór.

Arnar segir vera stíganda í leik íslenska liðsins og stöðugleika í hópnum. „Það hefur verið stígandi í okkar leik. Við ætluðum okkur auðvitað að vinna riðilinn í Þjóðadeildinni en fyrst það tókst ekki þá var mikilvægt að ná öðru sætinu upp á framhaldið að gera. Ég nefndi það á síðasta ári að við værum að leita að stöðugleika með okkar unga lið og mér finnst við vera á góðri leið með það. Við áttum leikjahrinu á þessu ári þar sem við vorum taplausir í sex leikjum og það voru allt leikir í FIFA-gluggum. Það er kominn stöðugleiki með það hvaða leikmenn við erum með í hópnum og líka í okkar leik.”

„Við erum erum að vinna markvisst að því að búa til lið, skapa liðsheild, og erum komnir með góðan kjarna leikmanna og það er auðvitað frábært að geta svo byggt ofan á það með því að fá reynslumikla leikmenn inn í hópinn. Við fengum Aron Einar, Guðlaug Victor og Alfreð inn síðast. Núna geta Guðlaugur Victor og Alfreð ekki verið með vegna meiðsla, en í staðinn fáum við Sverri Inga og Jóhann Berg inn, báðir auðvitað mjög reynslumiklir leikmenn með mikil gæði.”

“Við erum bara mjög spenntir fyrir þessu móti setjum stefnuna á að vinna það.”

Hópurinn
Rúnar Alex Rúnarsson – Alanyaspor – 19 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson – Viking FK – 1 leikur
Elías Rafn Ólafsson – FC Midtjylland – 4 leikir

Alfons Sampsted – Bodo/Glimt – 13 leikir
Hörður Björgvin Magnússon – Panathinaikos – 43 leikir, 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson – Slask Wroclaw – 11 leikir
Aron Einar Gunnarsson – Al Arabi – 100 leikir, 2 mörk
Davíð Kristján Ólafsson – Kalmar FF – 9 leikir
Sverrir Ingi Ingason – PAOK – 39 leikir, 3 mörk
Valgeir Lunddal Friðriksson – BK Häcken – 3 leikir
Aron Elís Þrándarson – OB – 15 leikir, 1 mark
Arnór Sigurðsson – IFK Norrköping – 23 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson – Silkeborg IF – 13 leikir, 1 mark
Ísak Bergmann Jóhannesson – FC Köbenhavn – 15 leikir, 2 mörk
Þórir Jóhann Helgason – Lecce – 14 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson – OH Leuven – 23 leikir, 4 mörk
Hákon Arnar Haraldsson – FC Köbenhavn – 5 leikir
Birkir Bjarnason – Adana Demirspor – 112 leikir, 15 mörk
Mikael Neville Anderson – AGF – 16 leikir, 2 mörk
Mikael Egill Ellertsson – Spezia Calcio – 8 leikir
Jóhann Berg Guðmundsson – Burnley – 81 leikur, 8 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen – IF Elfsborg – 16 leikir, 1 mark
Andri Lucas Guðjohnsen – IFK Norrköping – 11 leikir, 2 mörk

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Skotinn hrósar Gylfa Þór fyrir komandi einvígi – „Munum allir eftir honum“

Skotinn hrósar Gylfa Þór fyrir komandi einvígi – „Munum allir eftir honum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Skellur fyrir United – Áhuginn hverfandi

Skellur fyrir United – Áhuginn hverfandi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið

De Gea fengið nokkur tilboð en útilokar eitt þeirra alfarið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Guardiola rennir stoðum undir fréttir síðustu daga

Guardiola rennir stoðum undir fréttir síðustu daga
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Nóg að gera á skrifstofu Manchester United – Þrjú ný nöfn nú á blaði

Nóg að gera á skrifstofu Manchester United – Þrjú ný nöfn nú á blaði
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð

Gummi Ben veltir því upp hvort Pálmi hafi með þessu verið að senda æðstu mönnum vestur í bæ skýr skilaboð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Biðst innilega afsökunar á mjög óviðeigandi ummælum: Líkti honum við einhverfan einstakling – ,,Ætlaði aldrei að segja þetta“

Biðst innilega afsökunar á mjög óviðeigandi ummælum: Líkti honum við einhverfan einstakling – ,,Ætlaði aldrei að segja þetta“
433Sport
Í gær

Einn sá besti er ekki launahæstur í deildinni – Situr í þriðja sæti

Einn sá besti er ekki launahæstur í deildinni – Situr í þriðja sæti
433Sport
Í gær

Mynd af stjörnu EM vekur töluverða athygli – Heldur mikið upp á fyrrum leikmann liðsins

Mynd af stjörnu EM vekur töluverða athygli – Heldur mikið upp á fyrrum leikmann liðsins
433Sport
Í gær

Íslenskur dómarakvartett í Belfast

Íslenskur dómarakvartett í Belfast