Wanda Nara, samfélagsmiðlastjarnan og umboðsmaðurinn umdeildi, lét sitt ekki eftir liggja á Hrekkjavökunni og hafa tvær myndir sem hún birti af sér á hátíðinni vakið mikla athygli.
Wanda hefur mikið verið í fréttunum undanfarið, en hún er að skilja við knattspyrnumanninn Mauro Icardi. Hann og Wanda slitu fyrir um mánuði síðan sambandi sínu en þau höfðu verið gift síðan 2014. Skilnaðarferli mun að öllum líkindum hefjast á næstunni.
Sambandsslitin eru klárlega ekki gerð í góðu. „Hún er aðhlátursefni heimsins með hegðun sinni, með framkomu sinni. Ég er ekki tilbúinn að verja það sem er óverjanlegt,“ sagði Icardi á dögunum, en Wanda er kominn í samband með 22 ára gamla rapparanum L-Gante.
Wanda hefur starfað sem umboðsmaður Icardi síðustu ár en nú er talið að hann hafi látið hana fara. Það gerðist í kjölfar þess að hún krafðist um 144 milljóna íslenskra króna fyrir þátt sinn í félagaskiptum framherjans til Galatasaray í sumar.
Hér að neðan má sjá myndirnar sem Wanda birti af sér á Hrekkjavökunni, en hún er alls nakin undir kápu á annari þeirra.