fbpx
Sunnudagur 16.mars 2025
433Sport

Níðsöngvar um Eið Smára og Eggert Gunnþór koma fram í gögnum sem KSÍ birti í dag

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. október 2022 15:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frosti Viðar Gunnarsson eftirlitsmaður KSÍ á bikarúrslitaleik karla skrifaði í skýrslu sinn um níðsöngva sem stuðningsmenn Víkings sungu um Eið Smára Guðjohnsen þá þjálfara FH og Eggert Gunnþór Jónsson leikmann FH.

Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar frá 12. október 2022 um heimaleikjabann knattspyrnuliðs Víkings R. í mfl. karla í 1 leik er felldur úr gildi. Sekt knattspyrnudeldar Víkings R. að upphæð kr. 200.000 stendur óhögguð.

Þann 1. október sl. fór fram úrslitaleikur FH og Víkings R. í Mjólkurbikarkeppni karla á Laugardalsvelli í Reykjavík. Mánudaginn 3. október barst skýrsla frá eftirlitsmanni KSÍ á umræddum úrslitaleik til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Í samræmi við ákvæði 5.1.1. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál úrskurðar nefndin m.a. um þau atriði, sem fram koma í atvikaskýrslum eftirlitsmanna KSÍ í leikjum í Íslandsmóti KSÍ. Í skýrslu eftirlitsmanns í leiknum er atvikum, er varða áhorfendur og stuðningsfólk Víkings, lýst með eftirfarandi hætti:

„[…]Stuðningsmenn Víkinga voru aftur á móti með mun alvarlegri hegðun. Þá er ég hér að vísa til þess hóps sem var fremst í stúkunni, við grindverkið. Þeir kveiktu allavega í þrígang á blysum. Í fyrsta skiptið eftir að þeir skoruðu sitt fyrsta mark á mín 26. Einnig eftir annað mark sitt á mín 89. Og svo í þriðja skiptið að leik loknum. Nokkuð var um níðsöngva gagnvart leikmönnum og þjálfara FH sem voru særandi og með öllu óásættanlegir,“ segir í skýrslu Frosta sem hann skilaði inn til KSÍ.

„Það sem ég heyrði varðandi söngvana var „Eiður er alltaf fullur“ og „Number 6 is a sex offender“,“ segir einnig í skýrslu Frosta en Eiður Smári lét tímabundið af störfum sem þjálfari FH á dögunum.

Eggert Gunnþór er leikmaður númer 6 hjá FH en hann var á síðasta ári kærður fyrir naugðun ásamt Aroni Einari Gunnarssyni. Eftir rannsókn lögreglu var málið fellt niður bæði hjá héraðs og ríkissaksóknara.

„Sýnileg ölvun var hjá stuðningsmönnum Víkinga og einn stuðningsmaður hljóp inn á völlinn úr gömlu stúkunni að ég held, en ég sá ekki almennilega hvar hann kom inn. Hann gat síðan valsað um völlinn án afskipta í nokkurn tíma og ekki fyrr en hann var kominn fyrir framan stuðningsmenn Víkinga er hann stoppaði sem gæslan tók að bregðast við.“

„Einnig tók ég eftir bjórdósum í kringum gæslu sem stóð fyrir framan stuðningsmenn Víkinga, án þess að hafa séð þær fljúga þar inn, enda að fylgjast með leiknum sjálfum.“

Fréttablaðið/Anton Brink

Áfrýjun Víkings:

Í samræmi við reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál var skýrsla eftirlitsmanns leiksins send til hlutaðeigandi félags þann 4. október og því gefinn kostur á að koma að athugasemdum vegna skýrslunnar fyrir næsta reglulega fund aga- og úrskurðarnefndar.

Eins og fyrr segir bar áfrýjun Víkings árangur en í svari þeirra til áfrýjunarnefndar segir. „Í skýrslu eftirlitsmanns leiksins segir að stuðningsfólk Víkings hafi viðhaft særandi ummæli gagnvart leikmönnum og þjálfara FH. Skýrslan er verulega einhliða og alls ekki í samræmi við upplifun þeirra sem félagið hefur rætt við eftir leikinn. Það hefur t.a.m. komið fram bæði í fjölmiðlum og annars staðar að það hafi verið ölvun beggja megin í stúkunni og augljóst af myndefni frá RÚV að sóðaskapur var fyrir framan áhorfendapalla beggja stuðningsliða,“ segir í andsvari Víkinga.

Skýrsluna sem KSÍ birti í dag má lesa hérna

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Mæta ekki til leiks ef þetta gerist aftur

Mæta ekki til leiks ef þetta gerist aftur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Staðfesta nýja seríu af sjónvarpsþættinum vinsæla – Konurnar líklega í aðalhlutverki

Staðfesta nýja seríu af sjónvarpsþættinum vinsæla – Konurnar líklega í aðalhlutverki
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Reiður út í stjörnuna eftir endurkomuna – ,,Hann þarf að bæta sig verulega“

Reiður út í stjörnuna eftir endurkomuna – ,,Hann þarf að bæta sig verulega“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segir frá því hvernig bræðurnir geðþekku í Mosfellsbæ láta hvorn annan heyra það á æfingum

Segir frá því hvernig bræðurnir geðþekku í Mosfellsbæ láta hvorn annan heyra það á æfingum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mikil stemning á Ölveri fyrir úrslitaleikinn – Hvetur alla stuðningsmenn til að mæta

Mikil stemning á Ölveri fyrir úrslitaleikinn – Hvetur alla stuðningsmenn til að mæta
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir val Arnars gefa sterkar vísbendingar um að þessi stóra breyting sé í vændum – Einn ókostur sem þarf að hafa í huga

Segir val Arnars gefa sterkar vísbendingar um að þessi stóra breyting sé í vændum – Einn ókostur sem þarf að hafa í huga