Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martinez skrifaði í dag undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United.
Martinez hefur undanfarin þrjú tímabil spilað fyrir Ajax þar sem hann lék meðal annars undir stjórn núverandi knattspyrnustjóra Manchester United, Erik ten Hag.
Martinez er miðvörður að upplagi en getur einnig leikið sem vinstri bakvörður og á miðjunni.
Hann er nú smávaxnasti miðvörður fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. Martinez er 1,75 metrar á hæð.
Sá sem veitir honum mesta samkeppni er Cesar Azpilicueta, sem gjarnan spilar hægra megin í þriggja miðvarða kerfi. Spánverjinn er 1,78 metrar á hæð.
,,Það er heiður að vera orðinn leikmaður Manchester Untied. Ég hef lagt mikið á mig í gegnum tíðina svo þessi stund gæti orðið að veruleika. Nú mun ég bara leggja ennþá harðar að mér. Ég hef verið það heppinn að vera hluti af mörgum sigursælum liðum og ætla að halda því áfram hjá Manchester United. Til þess að það gerist þurfum við að leggja hart að okkur en ég hef fulla trú á því að við, ásamt knattspyrnustjóranum náum því takmarki,“ sagði Martinez eftir að hafa skrifað undir 5 ára samning við Manchester United í dag.