Samkvæmt frétt Daily Express hefur Cristiano Ronaldo hafnað svakalegu tilboði frá Sádi-Arabíu.
CNN í Portúgal sagði í gær frá því að félag í Sádi-Arabíu hafi boðið hinum 37 ára gamla Ronaldo svakalegan tveggja ára samning til að klára glæstan feril sinn.
Samkvæmt fréttinni bauð félagið Manchester United, sem á leikmanninn, 25 milljónir punda til að fá hann til sín.
Þá hefði Jorge Mendes, umboðsmaður Ronaldo, fengið 20 milljónir punda í sinn vasa.
Loks hefði portúgalski sóknarmaðurinn fengið 105 milljónir fyrir hvort tímabil um sig. Það gera þá 210 milljónir punda, eða yfir 34 milljarða íslenskra króna.
Þessu hafnaði hins vegar Ronaldo.
Ronaldo vill komast frá Man Utd. Hann sneri aftur til félagsins í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf það fyrir Real Madrid.
Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en Man Utd hafnaði hins vegar í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.