Meiðyrðamál Rebekuh Vardy gegn Coleen Rooney er nú fyrir dómsstólum og undanfarna daga hefur það verið tekið fyrir og það mun einnig verða gert næstu daga. Verjandi Rooney sótti hart að Rebekuh Vardy í dag, sakaði hana meðal annars um lygar og lagði fyrir hana nokkur mál sem hann vill meina að Vardy tengist beint en hún þverneitar.
Málið tengist inn í enska boltann en Jamie Vardy, framherji Leicester City er eiginmaður Rebekuh og Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Derby County og fyrrum leikmaður Manchester United er eiginmaður Coleenar.
Coleen Rooney hefur áður sakað Vardy um að leka upplýsingum um einkalíf Rooney-fjölskyldunnar í fjölmiðilinn The Sun og upplegg verjanda Rooney í dag var að koma með fleiri sambærileg mál til sögunnar, mál sem hann segir tengjast því að Rebekah Vardy eða umboðsmaður hennar fyrir tilstilli Vardy, hafi lekið upplýsingum um til fjölmiðla gegn greiðslu.
Vardy þurfti til að mynda að grípa til varna í dag er mál sem tengdust Riyad Mahrez, leikmanni Manchester City og fyrrum liðsfélaga eiginmanns hennar sem og máli sem tengdist öðrum liðsfélaga eiginmanns hennar, Danny Drinkwater.
Til að mynda voru lögð fram textaskilaboð sem Rebekah Vardy sendi á umboðsmann sinn um atvik sem átti sér stað þegar að Mahrez mætti ekki á æfingu hjá Leicester. Í skilaboðunum sagði Vardy að liðfélagar Mahrez væru brjálaðir út í hann.
,,Ég veit að þetta lítur ekki vel út en þetta var bara slúður um eitthvað sem var nú þegar vitneskja um hjá almenningi, þetta var bara slúður,“sagði Rebekah í vitnastúkunni í dag en hún sagðist ekki með það hafa að málið hafi ratað í fjölmiðla.
Hún var ósammála fullyrðingu Davids Sherbourne, verjanda Rooney um að hún hefði lekið upplýsingum um málið gegn greiðslu. ,,,Þetta hefur ekkert með mig að gera, þessi saga kom 100% ekki frá mér né umboðsmanni mínum.“
Þá dró verjandi Rooney einnig upp fréttamál er varðaði Danny Drinkwater, fyrrum liðsfélaga eiginmanns hennar en hann var handtekinn eftir að hafa klessukeyrt bíl sinn undir áhrifum áfengis með þeim afleiðingum að tvær stelpur sem voru með honum í bílnum þurftu að fara á sjúkrahús.
Sherbourne lagði fram textaskilaboð milli Vardys og umboðsmanns hennar Caroline Watts sem sönnunargögn.
,,,Frétt……Danny Drinkwater handtekinn,“ sendi Vardy til Caroline sem svaraði þá með spurningu þess efnis fyrir hvað hann hafi verið handtekinn. ,,Klessukeyrði bíl sinn og var undir áhrifum áfengis og tvær stelpur með í bílnum. Báðar á spítala með brotin rifbein. Nýsloppinn úr fangaklefa. Ég vil greiðslu fyrir þetta,“ svaraði Vardy þá.
Vardy komst síðan að því stuttu seinna að einhver hefði verið á undan henni að koma upplýsingum til fjölmiðla. ,,Fjandinn, það er einhver búinn að koma þessu frá sér. Ég er brjáluð yfir því að hafa ekki sent þér þetta fyrr.“
Verjandi Rooney spurði Vardy þá í dag hvort hún væri brjáluð vegna þess að hún myndi þá ekki fá greitt fyrir upplýsingarnar. ,,Ég veit það ekki,“ var svar Vardy.