Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, er á leið til Lyngby í dönsku B-deildinni samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Hinn 21 árs gamli Sævar flýgur til Danmerkur í dag til þess að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu.
Sævar hefur verið frábær fyrir Leikni á leiktíðinni, skorað 9 mörk í 12 leikjum.
Hann átti upphaflega að ganga í raðir Breiðabliks eftir leiktíðina. Þar sem hann er á leið út í atvinnumennsku verður ekkert af því.
Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby. Liðið hefur unnið báða leiki sína í B-deildinni til þessa.