fbpx
Föstudagur 15.nóvember 2024
433Sport

Faðir Þórhildar hafði beðið Guðna um að halda trúnað

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. ágúst 2021 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Faðir Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur hafði beðið Guðna Bergsson fyrrum formann KSÍ um að ræða mál hennar aldrei opinberlega. Tölvupóstur þess efnis barst Guðna frá föðurnum. Þetta staðfestir Borghildur Sigurðardóttir varaformaður KSÍ í samtali við DV.

Guðni Bergsson sagði upp störfum sem formaður KSÍ í kjölfar þess hvernig hann og KSÍ brugðust við ásökunum um kynferðisbrot landsliðsmanna.

Maraþonfundir fóru fram í Laugardalnum um helgina þar sem stjórn sambandsins fundaði.

Allt starfsfólk sambandsins var boðað til fundar eftir að Guðni tók ákvörðun um að stíga til hliðar. Íslenska karlalandsliðið er á leið í verkefni en liðið á þrjá heimaleiki á næstu dögum, málið mun án nokkurs vafa fá mikla athygli í undirbúningi fyrir leikina.

Þórhildur Gyða Arnardóttir steig fram í fréttum RÚV á föstudag og greindi frá því að árið 2017 hafi þekktur landsliðsmaður áreitt hana kynferðislega og ráðist svo á hana, og sagði að Guðni og KSÍ hafi verið vel kunnugt um málið.

Rannsókn málsins gekk hægt og endaði faðir Þórhildar á því að senda stjórnarmeðlimum KSÍ tölvupóst og tilkynnti þeim um kæruna. Fékk hann þá svör frá Guðna Bergs sem sagðist taka málinu alvarlega. Guðni hafi svo sett sig í samband við foreldra Þórhildar og tilkynnt þeim að málið myndi hafa afleiðingar fyrir gerandann.

Umræddur landsliðsmaður greiddi Þórhildi bætur vegna málsins. Á Vísi kemur fram að Þórhildur hafi fengið nokkrar milljónir í sinn vasa í miskabætur. Þá flaug önnur kona erlendis með Þórhildi þar sem þær hittu umræddan landsliðsmann í knattspyrnu. Hann baðst afsökunar og borgaði þeim miskabætur vegna málsins.

Guðni Bergsson og Klara Bjartmarz framkvæmdarstjóri KSÍ höfðu tæklað  málið fyrir hönd sambandsins ef marka má orð Borghildar á Vísir.is í gær. „Þau ákváðu að vinna með málið. Þau töldu sig bundin ákveðnum trúnaði til að fara ekki með það lengra. Fólk verður líka að átta sig á að þetta eru afskaplega erfið og flókin mál. Þarf að ríkja trúnaður í svona málum. Við erum bara í þeirri stöðu sem ég held að allt samfélagið sé í núna. Við vitum ekki hvernig á að bregðast við og hvað á að gera,“ sagði Borghildur sem mun ásamt Gísla Gíslasyni stýra formennsku í KSÍ eftir að Guðni lét af störfum.

Borghildur segir við Vísi að þolandinn, í þessu tilfelli Þórhildur og faðir hennar hafi farið fram á að trúnað yrði haldið í málinu. Því má áætla að Guðni hafi ekki viljað tjá sig opinberlega um málið af fyrra bragði. „Já, það var óskað eftir því að Guðni (Bergsson) héldi trúnaði í því. Það allavega var svoleiðis. Það var talið að þetta mál hefði verið leyst í öðrum farvegi,““ sagði Borghildur við Vísir og staðfestir við DV að um sé að ræða mál Þórhildar.

„Það var að hálfu þolanda,“ sagði Borghildur um beiðnina um að KSÍ myndi ekki tjá sig ekki um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Staðfest að United og Arsenal séu að berjast um landsliðsmanninn

Staðfest að United og Arsenal séu að berjast um landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Íslenskir eftirlitsmenn á ferð og flugi um Evrópu í vikunni

Íslenskir eftirlitsmenn á ferð og flugi um Evrópu í vikunni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Dómarar geta tekið kókaín eins og þeir vilja

Dómarar geta tekið kókaín eins og þeir vilja
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Nistelrooy sagður vilja starfið sem hann hafnaði í sumar

Nistelrooy sagður vilja starfið sem hann hafnaði í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Albert Brynjar hendir fram samsæriskenningu um fjarveru Gylfa í landsliðinu – „Hann var ósáttur“

Albert Brynjar hendir fram samsæriskenningu um fjarveru Gylfa í landsliðinu – „Hann var ósáttur“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir að heppnin hafi ekki verið með Ten Hag – ,,Markmiðið var að ná árangri undir hans stjórn“

Segir að heppnin hafi ekki verið með Ten Hag – ,,Markmiðið var að ná árangri undir hans stjórn“
433Sport
Í gær

Lokaorð Van Nistelrooy til leikmanna Manchester United

Lokaorð Van Nistelrooy til leikmanna Manchester United
433Sport
Í gær

Grét í búningsklefanum í hálfleik um helgina

Grét í búningsklefanum í hálfleik um helgina