KA vann góðan 2-0 heimasigur gegn HK í Pepsi Max deild karla í dag. Fyrirliðinn Ásgeir Sigurgeirsson skoraði fyrra mark liðsins á 29. mínútu áður en Daníel Hafsteinsson bætti við öðru marki þegar að fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og þar við sat. Lokatölur 2-0 fyrir heimamenn.
KA styrkir þar með stöðu sína í 5. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 12 leiki, og er enn í baráttu um Evrópusæti en liðið er einungis einu stigi á eftir KR í 4. sætinu.
HK er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum frá öruggu sæti.
KA 2 – 0 HK
1-0 Ásgeir Sigurgeirsson (’29)
2-0 Daníel Hafsteinsson (’50)