Ísland vann sigur á Færeyjum í vináttulandsleik í kvöld. Leikurinn var nokkuð dapur heilt yfir. Hér neðst í fréttinni má sjá nokkuð af því sem Twitter hafði upp á að bjóða eftir leik.
Færeyjar voru betri í fyrri hálfleiknum og stjórnuðu leiknum. Staðan í hálfleik var þó markalaus.
Mikael Neville Anderson skoraði svo eina mark leiksins á 70. mínútu með frábæru skoti eftir góðan undirbúnings Birkis Bjarnasonar og Alberts Guðmundssonar.
Plúsar og mínusar úr leiknum eru hér fyrir neðan.
Plús
Hjörtur Hermannsson og Brynjar Ingi Bjarnason halda áfram að mynda virkilega öflugt miðvarðapar. Báðir voru virkilega traustir í kvöld. Þeir lofa góðu upp á framhaldið enda eiga þeir báðir nóg af árum eftir í boltanum.
Birkir Bjarnason var mjög góður í kvöld og í hlutverki þegar íslenska liðið gerði sig líklegt fram á við, sem var sjaldan.
Innkoma varamannanna, þá sérstaklega Alberts Guðmundssonar og Mikaels Neville Andersonar, var öflug. Albert lagði einmitt upp eina mark leiksins á Mikael.
Mínus
Íslenska liðið átti erfitt með að ná upp góðu spili í leiknum. Það varð til þess að ógnin fram á við var virkilega lítil.
Kolbeinn Sigþórsson og Ísak Bergmann Jóhannesson fylgdu hvorugir eftir góðum frammistöðum gegn Mexíkó í síðasta leik. Kolbeinn klúðraði úr algjöru dauðafæri og Ísak komst lítið í boltann.
Færeyska liðið virtist geta haldið boltanum að vild í fyrri hálfleik. Þeir fengu alltof mikið pláss.