Fjórir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikars karla í kvöld. Stjarnan vann góðan 2-0 sigur á Keflavík þar sem Emil Atlason reimaði á sig markaskóna.
Lærisveinar Arnars Gunnlaugssonar hafa verið í góðu stuði í vetur og slátruðu Fram 5-1 í Víkinni.
Breiðablik vann auðveldan sigur á Fjölni og ÍA var ekki í neinum vandræðum með Vestra. Markaskorarar eru frá Fótbolta.net.
Stjarnan 2 – 0 Keflavík
1-0 Emil Atlason (‘7 )
2-0 Emil Atlason (’83 )
ÍA 4 – 1 Vestri
0-1 Kasper Hansen
1-1 Viktor Jónsson
2-1 Gísli Laxdal Unnarsson
3-1 Aron Kristófer Lárusson
4-1 Guðmundur Tyrfingsson
Víkingur R. 5 – 1 Fram
1-0 Kristall Máni Ingason
2-0 Helgi Guðjónsson
3-0 Kristall Máni Ingason
3-1 Alexander Már Þorláksson
4-1 Logi Tómasson
5-1 Kristlall Máni Ingason
Fjölnir 1 – 3 Breiðablik
0-1 Oliver Sigurjónsson
0-2 Höskuldur Gunnlaugsson
0-3 Jason Daði Svanþórsson
1-3 Baldur Sigurðsson