fbpx
Sunnudagur 09.mars 2025
433Sport

Maguire blótaði samherja sínum á nýjan leik

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 15. mars 2021 08:56

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tók á móti West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Manchester United en leikið var á heimavelli liðsins, Old Trafford. Eina mark leiksins kom á 53. mínútu og það skoraði Craig Dawson, leikmaður West Ham United er hann skallaði boltann í eigið net eftir að Bruno Fernandes hafði spyrnt hornspyrnu inn á vítateig West Ham.

Það var því Manchester United sem fór af hólmi með 1-0 sigur og þrjú stig í farteskinu. Liðið endurheimti um leið 2. sæti deildarinnar Leicester City og situr þar með 57 stig.

Harry Maguire fyrirliði Manchester United var frábær í leiknum en hann las líka yfir samherjum sínum sem honum fannst ekki spila vel.

„Rífðu þig í gang, hættu að gefa helvítis boltann frá þér,“ öskraði Maguire á hægri bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka í leiknum.

Tæpar tvær vikur eru síðan að Maguire las yfir Marcus Rashford en sá svaraði fyrir sig ólíkt bakverðinum. Hvað viltu að ég geri?,“ öskraði Rashford á Maguire sem hafði verið að lesa yfir honum fyrir að vera ekki kominn upp í línu.

Maguire var fljótur til svars. „Drullast til að koma þér úr rangstöðunni,“ sagði fyrirliðinn.

Það var þá sem að Rashford fékk nóg og sturlaðist. „Haltu kjafti, helvítis typpahaus,“ öskraði Rashford til baka á fyrirliða sinn samkvæmt Mirror.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Staðfestir það að hann hafi hafnað stórliðinu – ,,Finn ekki fyrir þessu á öðrum stað“

Staðfestir það að hann hafi hafnað stórliðinu – ,,Finn ekki fyrir þessu á öðrum stað“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Nefna sex leikmenn sem ættu að fá tækifæri með landsliðinu – Listinn mjög umdeildur

Nefna sex leikmenn sem ættu að fá tækifæri með landsliðinu – Listinn mjög umdeildur