fbpx
Þriðjudagur 24.desember 2024
433Sport

Stóru breytingarnar sem margir spáðu fyrir um eru ekki í kortunum

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 10. mars 2021 19:30

Arnar Þór Viðarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson fer af stað sem landsliðsþjálfari Íslands síðar í þessum mánuði, fram undan eru þrír mikilvægir leikir í undankeppni Heimsmeistaramótsins. Liðið leikur gegn Þýskalandi, Armeníu og Liechtenstein núna í mars og fara allir leikir fara fram á útivelli.

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla, mun eftir tvær vikur velja sinn fyrsta landsliðshóp. Arnar tók við starfinu í desember en aðstoðarmenn hans eru Eiður Smári Guðjohnsen og Lars Lagerbäck. Þegar íslenska landsliðinu mistókst að komast inn á Evrópumótið seint á síðasta ári mátti heyra raddir um að nú væri kominn tími á breytingar, sami kjarni hefur skipað íslenska landsliðið í tæp tíu ár með mögnuðum árangri. Arnar Þór hefur lítið gefið út um hvort hann fari í miklar breytingar á hópnum en ætla má að þær verði miklu minni en margir höfðu spáð.

Getty Images

Markvarðarstaðan
Arnar Þór Viðarsson viðurkenndi í viðtali í vikunni að engin ákvörðun hefði verið tekin um stöðu markvarðar, talið hafði verið að Hannes Þór Halldórsson myndi missa stöðu sína sem fyrsti kostur í markið, en sviðsmyndin í dag er allt önnur. Rúnar Alex Rúnarsson, sem flestir töldu öruggt að tæki stöðu markvarðar Íslands, hefur mátt þola mikla gagnrýni eftir mistök sín með Arsenal í leik gegn Manchester City í desember. Síðan þá hefur hann varla fengið að spila og hefur misst stöðu sína á bekknum hjá Arsenal, sjálfstraust þessa öfluga markvarðar gæti verið í molum. Ögmundur Kristinsson gekk í raðir Olympiakos síðasta haust og hefur spilað sárafáa leiki síðan þá. Þessir tveir keppinautar Hannesar síðustu ár hafa því lítið gert til að verðskulda sætið fram yfir Hannes. Hannes er 36 ára gamall og er að hefja sitt þriðja tímabil með Val en líklegast verður að teljast að hann haldi stöðu sinni til að byrja með undir stjórn Arnars Þórs.

Getty Images

Varnarlínan
Helstu breytingarnar í liðinu gætu átt sér stað í varnarlínunni, staða hægri bakvarðar hefur verið til vandræða en Guðlaugur Victor Pálsson leysti stöðuna á síðasta ári og gerði það með miklum glæsibrag. Arnar Þór sem áður var þjálfari U21 árs landsliðsins hafði mikla trú á Alfons Sampsted í því hlutverki og bendir margt til þess að hann taki hann með sér í A-landsliðið og geri hann að lykilmanni. Með því gefst líka færi til að koma Guðlaugi Victori upp á miðsvæðið sem er hans náttúrulega staða. Arnar Þór þarf svo að velta því fyrir sér hvað hann gerir með miðvarðarstöðuna í fyrsta verkefni sínu. Þegar þetta er skrifað hefur Ragnar Sigurðsson ekki spilað deildarleik frá því í september og Kári Árnason verður 39 ára síðar á þessu ári. Arnar hefur sagt frá því að hann horfi enn til þess að Kári geti verið leikmaður liðsins. Sverrir Ingi Ingason mun líklega fá fullt traust í fyrsta verkefni Arnars en Ragnar og Kári eru teymi sem aldrei er hægt að afskrifa. Stöðu vinstri bakvarðar munu svo Ari Freyr Skúlason og Hörður Björgvin Magnússon halda áfram að berjast um.

Getty Images

Miðsvæðið
Ef allt fer að óskum munu allir helstu miðjumenn íslenska landsliðsins síðustu ár verða heilir heilsu seinni hlutann í mars. Líklegt er að Guðlaugur Victor muni koma inn sem miðjumaður hjá Arnari Þór, en Arnar hefur mest notað 4-1-4-1 kerfið í sinni þjálfun. Jón Dagur Þorsteinsson, sem er í miklu uppáhaldi hjá Arnari, gæti fengið stærra hlutverk með A-landsliðinu en áður. Annars má búast við að Aron Einar Gunnarsson, Birkir Bjarnason, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson verði áfram í algjöru lykilhlutverki. Stærsti hausverkur Arnars er heilsuleysi Jóhanns Berg síðustu mánuði og hvernig leysa skuli málin ef hann er fjarverandi.

Sóknarlínan
Arnar Þór bíður nú og vonar að besti íslenski framherjinn síðustu árin, Alfreð Finnbogason, verði heill heilsu eftir tæpar tvær vikur. Framherjinn hefur misst af síðustu leikjum Augsburg og misst út mikið á þessu tímabili. Arnar mun að öllum líkindum aðeins spila með einn framherja og ef Alfreð verður ekki heill heilsu þarf hann að skoða aðra kosti. Jón Daði Böðvarsson, Albert Guðmundsson og Viðar Örn Kjartansson gætu leyst Alfreð af hólmi og þá er möguleiki á því að Kolbeinn Sigþórsson verði í hópnum en hann á enn eftir að spila sinn fyrsta leik með IFK Gautaborg.

Niðurstaða
Líklegast er að þegar Arnar Þór rennir yfir hóp sinn og sína möguleika til að stilla saman sterkasta mögulega byrjunarliðinu, verði breytingarnar sárafáar. Hann er líklegur til þess að setja Alfons Sampsted inn sem hægri bakvörð. Sverrir Ingi Ingason sem hefur verið fastamaður í hópnum en aldrei fengið traust sem byrjunarliðsmaður ætti að fá stórt hlutverk. Framar á vellinum má búast við því að sama gamla bandið slái taktinn, Arnar Þór þarf hins vegar að hafa betri lausnir en Erik Hamrén fann, ef Alfreð Finnbogason og Jóhann Berg eru fjarverandi vegna meiðsla. n

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Gummi Ben ræðir son sinn Albert og skrefið í sumar – „Þá hef ég trú á að góðir hlutir gerist“

Gummi Ben ræðir son sinn Albert og skrefið í sumar – „Þá hef ég trú á að góðir hlutir gerist“
433Sport
Í gær

Salah tók fram úr Rooney í gær

Salah tók fram úr Rooney í gær
433Sport
Í gær

Van Dijk veit ekki hvort eða hvenær hann skrifar undir

Van Dijk veit ekki hvort eða hvenær hann skrifar undir
433Sport
Í gær

Saka ekki sá eini sem verður frá í töluverðan tíma

Saka ekki sá eini sem verður frá í töluverðan tíma
433Sport
Í gær

Bruno Fernandes grét inni á skrifstofu eftir að hann fékk ekki að fara

Bruno Fernandes grét inni á skrifstofu eftir að hann fékk ekki að fara
433Sport
Í gær

Eggert Gunnþór skrifar undir nýjan samning

Eggert Gunnþór skrifar undir nýjan samning