Grétar Rafn Steinsson er einn af fimm mönnum sem gætu tekið við starfi yfirnjósnara hjá Leicester City í ensku úrvalsdeildinni. Þetta kemur fram á vefsíðu Leicester Mercury.
Allt lítur út fyrir að Lee Congerton, sem hefur unnið með Brendan Rodgers hjá Chelsea, Liverpool, Celtic og Leicester, segi upp starfi sínu sem yfirnjósnari hjá félaginu til að ganga til liðs við Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni. Þetta sagði David Ornstein, blaðamaður á The Athletic, fyrr í dag.
Grétar gekk frá borði sem yfirnjósnari hjá Everton fyrr í mánuðinum eftir rúmlega tvö ár í starfi. Hann var áður yfirmaður knattspyrnumála hjá Fleetwood Town sem lék í ensku C-deildinni á þeim tíma.
Grétar Rafn er aðallega þekktur fyrir að hafa leikið með Bolton Wanderers á árunum 2008-2012.
Aðrir sem komu til greina voru Andy Scott, Frank Arnesen, Steve Walsh og Rob Mackenzie.