fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
433Sport

Eggert Gunnþór er maðurinn sem er sakaður um nauðgun ásamt Aroni Einari

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. október 2021 12:57

Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eggert Gunnþór Jónsson leikmaður FH er sá aðili sem er sakaður um að hafa nauðgað konu árið 2010 í Kaupmannahöfn. Stundin segir frá þessu. Nafn Eggerts hafði ekki komið fram áður.

Aron Einar Gunnarsson fyrirliði Íslands er sá sem hafði verið nafngreindur í málinu. Sakar íslensk kona Eggert og Aron Einar um að hafa nauðgað sér í Kaupmannahöfn árið 2010.

Aron Einar hefur hafnað sök í málinu en greint hefur verið frá því að Eggert og Aron Einar muni gefa skýrslu hjá lögreglu í nóvember.

Viðar Halldórsson formaður FH segir að hann viti af málinu og að hann sé í samskiptum við bæði lögmenn Eggerts og Arons.

„Hver segir að það sé lögreglurannsókn í gangi? Í fyrsta lagi veit hvorki þú né ég hvort þessir menn hafi verið kærðir, enda áhöld um hvort búið sé að kæra. Það skulum við fyrst hafa á hreinu,“ segir Viðar við Stundina.

Viðar var staddur í Kaupmannahöfn á þessum tíma en íslenska landsliðið hafði þá leikið gegn Danmörku. Sat Viðar í landsliðsnefnd. Af orðum hans að dæma hafnar Eggert allri sök í málinu. „Við sem vorum þar heyrðum aldrei af þessu máli, aldrei. Það sjá allir að ellefu ára gamalt mál … ég ætla ekki að segja að hún sé að ljúga,“ segir hann og heldur áfram. Ég ætla heldur ekki að segja að Eggert Gunnþór eða Aron Einar séu að ljúga. Ég get það ekki. Ég var ekki þarna. Ég var í Kaupmannahöfn, en ég var ekki á staðnum,“,“ segir Viðar við Stundina

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Skelfileg tíðindi bárust frá Suður-Ameríku: Látinn aðeins 20 ára gamall – ,,,Það er svo sársaukafullt að kveðja“

Skelfileg tíðindi bárust frá Suður-Ameríku: Látinn aðeins 20 ára gamall – ,,,Það er svo sársaukafullt að kveðja“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sveindís segist vera heil heilsu: ,,Þetta er bara lúkkið, ætlaði að líta út fyrir að vera geðveikt sterk“

Sveindís segist vera heil heilsu: ,,Þetta er bara lúkkið, ætlaði að líta út fyrir að vera geðveikt sterk“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sádarnir stórhuga – Ein stjarna að detta inn fyrir dyrnar og nú er horft til Englands

Sádarnir stórhuga – Ein stjarna að detta inn fyrir dyrnar og nú er horft til Englands
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun

Veðbankar segja þetta líklegasta áfangastað Southgate eftir tíðindin í morgun
433Sport
Í gær

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð

Þessi tölfræði í tapi United í gær veldur áhyggjum – Sama vandamál og á síðustu leiktíð
433Sport
Í gær

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate

Segir frá atviki sem ekki sást í sjónvarpinu – Bellingham sturlaðist og sagði þetta við Southgate