Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, lést í gær, sjötugur að aldri. Greint hefur verið frá því að banamein Jóhannesar hafi verið COVID-19 veiran. Jóhannes gerði garðinn frægan með stórliði Celtic í Skotlandi á áttunda áratugnum og naut mikillar hylli meðal stuðningsmanna liðsins
Jóhannes fæddist í Vestmannaeyjum árið 1950, hann lék lengst af með Val. Hann reyndi einnig 22 ára gamall fyrir sér í atvinnumennsku í Suður-Afríku með Cape Town City í Höfðaborg. Eftir stutta dvöl hjá Metz í Frakklandi og svo Holbæk í Danmörku gekk Jóhannes til liðs við Celtic í Skotlandi árið 1975.
Jóhannes spilaði í fimm farsæl ár með skoska stórliðinu. Hann skoraði 36 mörk á ferli sínum hjá Celtic í 188 leikjum og þótti afar fjölhæfur leikmaður sem gat leyst flestar stöður á knattspyrnuvellinum. Hjá Celtic vann Jóhannes tvo Skotlandsmeistaratitla og einn bikarmeistaratitil. Hann hélt svo til Bandaríkjanna árið 1980. Jóhannes lék einnig með Hannover 96 í Þýskalandi og Motherwell í Skotlandi áður en atvinnumannaferli hans lauk árið 1984.
Jóhannes lék 34 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim tvö mörk. Hann var bróðir Atla Eðvaldssonar, fyrrverandi landsliðsfyrirliða, en Atli lést árið 2019. Jóhannes lætur eftir sig eiginkonu, Catherine Bradley, og fjögur börn.
„Góður vinur fallinn frá. Jóhannes Eðvaldsson (Búbbi) lést á sjúkrahúsi í Glasgow í Skotlandi í dag. Fékk covid og tapaði baráttunni við þá skæðu veiru. Jóhannes var leikfimiskennari minn í nokkur ár og það er óhætt að segja það að hann hafi verið gallharður og fylginn sér í því starfi. Hann var mikil fyrirmynd í boltanum. Grjótharður og topp varnarmaður og markið sem hann skoraði á móti A-Þjóðverjum með hjólhestaspyrnu árið 1975 gleymist seint. Okkar leiðir lágu saman aftur þegar ég gerðist spilandi þjálfari Reynis í Sandgerði eftir ferilinn hjá FH. Búbbi tók þá við starfi sem framkvæmdastjóri Reynis og það voru góðir tímar hjá okkur. Hvíl í friði kæri vinur,“ skrifar Guðmundur Hilmarsson, fyrrum blaðamaður á Morgunblaðinu í pistli á Facebook.
Halldór Einarsson, sjálfur Henson minnist Jóhannesar með fallegum orðum. „Það er með sorg í hjarta sem ég kveð mjög góðan vin Jóhannes Edvaldsson sem lést í gær í Skotlandi þar sem hann hefur búið í 45 ár og eignast yndislega fjölskyldu. Big Shuggie eins og hann var gjarnan kallaður var mjög vinsæll meðal stuðningsmanna Celtic og Motherwell, liðunum sem hann lég með í Skotlandi. Búbbi var baráttujaxl en veikindin sóttu á og hann tapaði baráttunni síðdegi í gær, sunnudaginn 24.janúar,“ skriar Henson á Facebook.
Ljóst má vera að Jóhannes var hetja í augum stuðningsmanna Celtic, margir minnast þessa merka manns á samfélagsmiðlum.
„Afar sorglegt að heyra að Jóhannes „Big Shuggie“ Eðvaldsson sé fallinn frá. Hann var mikilvægur hlekkur í Celtic liðinu sem lagði Rangers að velli 4:2 og varð skoskur meistari árið 1979. Hugur minn er hjá fjölskyldu hans,“ skrifaði Murdo Macleod fyrrum liðsfélagi hans.
„Verulega leiðinlegt að heyra að hinn mikli maður Jóhannes er farinn frá okkur. Hann reyndist mér afskaplega vel árið sem ég kom til Celtic,“ skrifaði markvörðurinn fyrrverandi Packie Bonner.
Fleiri minnast Jóhannesar eins og sjá má hér að neðan.
Really sorry to hear that a great man Johannes Edvaldsson has left us. He was very good to me in the first year that I came to Celtic. RIP pic.twitter.com/JOVMkYqRTH
— Packie Bonner (@PackieBonner1) January 24, 2021
Very sad to hear of the passing of Johannes “Big Shuggie” Edvaldsson. Big part of the team when we beat Rangers 4-2 to win the league in 1979. My thoughts are with his family. @CelticFC pic.twitter.com/vSiLioHoUM
— Murdo Macleod (@murdomacleod06) January 24, 2021
RIP BÚBBI❤️ pic.twitter.com/75ssc1zrdi
— E.Börkur Edvards (@borkur_e) January 24, 2021
Just heard the bad news. That’s a shocker! Big Johannes ‘Shuggie’ Edvaldsson has died with Covid.
Never a dull moment with the big man.
Hail Hail and RIP Shuggie always be remembered with admiration and respect from Celtic supporters of my generation ☘️☘️☘️— Hun Hating Hombre (@MadMentalTim) January 24, 2021
Remember Edvaldsson clearly from my early Celtic supporting days, and as I get older myself can`t help thinking 70 is no age at all, that`s a fantastic photo as well, Johnny Doyle there on the end alongside Tommy Burns https://t.co/9QL1JIEF8I
— Psychedelic Joinery (@mckenzieg2) January 24, 2021
Fór í mína fyrstu utanlandsferð 1975 með KR til Skotlands. Þegar lent var á flugvellinum í Glasgow voru þar bunkar með dagblöðum. Á forsíðu var Jóhannes Edvaldsson. Hann hafði skorað sigurmark Celtic gegn Englandsmeisturum Derby kvöldið áður. Blessuð sé minning hans. pic.twitter.com/OQYOD7SDnc
— Sigurdur Helgason (@14siggihelgason) January 25, 2021