Jón Rúnar Halldórsson Fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar FH er ósáttur með þann málflutning að Íslenskur toppfótbolti hafi nýtt tækifærið til að koma Guðna Bergssyni og stjórn KSÍ frá völdum. Jón ræddi málið á Bylgjunni í morgun.
ÍTF setti mikinn þunga á það að stjórn KSÍ segði af sér vegna ásakana um að sambandið væri að hylma yfir meint kynferðisbrot landsliðsmanna. Degi áður hafði Guðni Bergsson formaður sagt starfi sínu lausu. Stjórnin sagði svo af sér vegna áhlaups frá ÍTF.
Lögmaðurinn Sigurður G Guðjónsson er einn þeirra sem hefur talað um að ÍTF hefði látið til skara skríða. „Það er barátta um peninga í KSÍ. Hverjir fóru fastast á eftir formanninum og stjórn í þessu máli? Það eru formenn Toppfótbolta, þeir sem hafa viljað soga peningana út úr KSÍ. Til að KSÍ hafi minni peninga í unglingastarf og kvennastarf. Þessi samtök voru stofnuð til höfuðs stjórnar KSÍ sem sér um að dreifa fjármunum í hreyfinguna. Það fé er bundið skilmálum,“ sagði Sigurður Guðni á sínum tíma.
Jón Rúnar svaraði þessu á Bylgjunni. „Það var talað um að hagmunafélagsskapur sem heitir Íslenskur Toppfótbolti. Það hefur farið svolítið fyrir því núna að þessi félagsskapur, sem samanstendur vísu af 27 félögum, félög í efstu deild karla og kvenna og í Lengjudeild karla. Þessi félög telja samtals yfir áttatíu prósent iðkenda í þessu landi. Að þessi félagsskapur væri mættur á staðinn til þess að ræna völdum,“ sagði Jón Rúnar.
Jón Rúnar segir það einkenna umræðuna að það sé leitað að sökudólgum. „Þetta er svolítið einkennandi fyrir þetta allt saman. Það er svo stutt í það að að verði leitað að að einhverjum eða einhverju sem er einhvers konar sökudólgur eða valdur að einhverju. Þetta er svo langt frá því að vera hið sanna. Ég skal alveg taka undir það að sá sem hér situr að hann fór fyrir þessari knattspyrnudeild í ansi mörg ár. Ég held að það viti það allir sem að þessu hafa komið að hann fór fyrir henni og það fór oft á tíðum ekki lítið fyrir honum. Ég er að tala um sjálfan mig en ég held að hreyfingin sem slík virði það í hljóði,“ sagði Jón Rúnar.
„Í þessu tilfelli er það alveg klárt að þarna eru forvígismenn 27 félaga og þarna kemur upp mjög alvarlegt ástand og alvarlegt mál. Menn álykta það að til þess að axla ábyrgð að þá sé óskað eftir aukaþingi og á þessu aukaþingi geti menn þá, þeir sem það vilja, fengið endurnýjað umboð sitt. Það er það sem menn sáu fyrir sér.“