fbpx
Sunnudagur 20.apríl 2025
433Sport

Vísindin á Íslandi og Danmörku ekki þau sömu – Sjáðu muninn í þessari viku

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 3. september 2021 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á meðan Íslendingar búa við við talsvert miklar takmarkanir í sínu lífi er lífið öðruvísi í Danmörku. Þetta sést best þegar horft er yfir knattspyrnuleikvanga.

Íslenska landsliðið mætti Rúmeníu í gær á Laugardalsvelli og voru um 2200 áhorfendur á vellinum. Uppselt var á völlinn sem tekur 10 þúsund einstaklinga í sæti. Á knattspyrnuleikjum á Íslandi skulu vera 200 manna sóttvarnarhólf.

Svona var staðan á Íslandi

Ísland er eitt af fáum löndum í Evrópu sem hefur þessar takmarkanir á leikjum utandyra. Á miðvikudag var stútfullur völlur á Parken í Kaupmannahöfn. Þar unnu Danir góðan sigur á Skotlandi.

Í gær greindust 700 einstaklingar með COVID-19 veiruna í Danmörku, á sama tíma voru smitin á Íslandi 54. Um alla Evrópu í gær mátti sjá fulla leikvanga af fólki sem naut þess að horfa á knattspyrnu.

Á sama tíma í Laugardalnum myndaðist nánast enginn stemming og vængbrotið íslenskt landslið tapaði gegn slöku rúmensku liði á heimavelli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Ekki skorað í 15 leikjum í röð og stuðningsmenn eru orðnir áhyggjufullir

Ekki skorað í 15 leikjum í röð og stuðningsmenn eru orðnir áhyggjufullir
433Sport
Í gær

Hefði Real gert betur með 35 ára gamlan mann í framlínunni? – ,,Erum ekki með leikmann eins og hann“

Hefði Real gert betur með 35 ára gamlan mann í framlínunni? – ,,Erum ekki með leikmann eins og hann“
433Sport
Í gær

Van Dijk fékk svakalega launahækkun

Van Dijk fékk svakalega launahækkun
433Sport
Í gær

Brady neitaði að árita treyju Barcelona – Sjáðu myndbandið

Brady neitaði að árita treyju Barcelona – Sjáðu myndbandið