Víkingur og Valur mættust á Víkingsvellinum í sannkölluðum toppslag í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í gær. Víkingur bar sigur úr býtum með tveimur mörkum gegn einu. Kwame Quee kom Víkingum yfir á 23. mínútu eftir frábæra sókn sem endaði á því að Pablo Punyed sendi boltann fyrir á kollinn á Kwame sem skallaði boltann í netið. Viktor Örlygur Andrason kom Víkingum í 2-0 fimm mínútum síðar með frábæru einstaklingsframtaki.
Valsmenn byrjuðu seinni hálfleik af meiri krafti eftir arfaslakan fyrri hálfleik en tókst þó ekki að skora fyrr en í uppbótartíma. Varamaðurinn Kaj Leo í Bartalsstovu var þar að verki en lengra komust Valsmenn ekki og lokatölur 2-1 fyrir Víkinga.
Skömmu áður hafði Valur fengið rosalegt færi til þess að jafna en hetjudáð Sölva Geir Ottesen kom í veg fyrir það. Tryggvi HRafn Haraldsson virtist vera að fara að skora auðvelta mark fyrir Val en þá mætti Sölvi Geir og kastaði andliti sínu fyrir.
„Sölvi Geir spilar ekki bara í gegnum nánast allan sársauka heldur líka fórnar hann sér svona fyrir liðið. What a captain,“ skrifar Albert Brynjar Ingason og birtir myndband af hetjudáð Sölva
Sölvi Geir spilar ekki bara í gegnum nánast allan sársauka heldur líka fórnar hann sér svona fyrir liðið.
What a captain 👑 pic.twitter.com/IDSfcnKe75
— Albert Ingason. (@Snjalli) August 22, 2021
Það er orðið ansi jafnt á topppnum en það munar sjö stigum á 1. og 5. sæti. Valur og Víkingur R. eru hnífjöfn á toppi deildarinnar, en bæði lið eru með 36 stig eftir 17 leiki. Breiðablik er í 3. sæti með 35 stig og á leik til góða á tvö efstu liðin.
„Svona vinna menn tittla. Gerir allt fyrir liðið,“ skrifar Víglundur Einarsson
Tómas Þór Þórðarson ritstjóri enska boltans hjá Símanum þekkir sögu Sölva betur en flestir. „Skulum ekki gleyma að Sölvi Geir lenti í flugslysi á bíl 18 ára en saumaði samt saman trylltan atvinnumannaferil með ónýtt bak og bar eitt sinn fyrirliðaband landsliðsins. Hann hefur verið stríðsmaður frá því ég tók á móti honum í Breiðó ’95. Sterkasti gaur sem ég hef kynnst,“ skrifar Tómas Þór.
Sölvi Geir lenti í bílslysi 18 ára gamall og ræddi það við Vísir.is á sínum tíma. „Vinur minn er að keyra frekar hratt og við missum stjórn á bílnum við brúna hjá Hamraborginni. Við förum út af rétt eftir hana þar sem er alveg þokkalegt fall. Við fljúgum einhverja 40 metra í lausu lofti, snúumst í loftinu og lendum á hvolfi ofan á bíl. Höggið sem ég fæ á höfuðið er svakalegt,“ sagði Sölvi við Vísi fyrir nokkrum árum.
Skulum ekki gleyma að Sölvi Geir lenti í flugslysi á bíl 18 ára en saumaði samt saman trylltan atvinnumannaferil með ónýtt bak og bar eitt sinn fyrirliðaband landsliðsins. Hann hefur verið stríðsmaður frá því ég tók á móti honum í Breiðó ’95. Sterkasti gaur sem ég hef kynnst.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 22, 2021
Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby tekur í sama streng. „Þvílíkur stríðsmaður. Sölvi Geir. Hungrið í þennan titil hjá tveimur grjóthörðum uppöldum Víkingum er á öðru leveli. Spennandi lokakafli í deildinni.“
Þvílíkur stríðsmaður. Sölvi Geir. Hungrið í þennan titil hjá tveimur grjóthörðum uppöldum Víkingum er á öðru leveli. Spennandi lokakafli í deildinni 🙏 https://t.co/KSkNcLDl08
— Freyr Alexandersson (@freyrale) August 23, 2021
Sölvi Geir ég elska þig ❤️❤️❤️
það harðasta sem ég hef séð.#fotboltinet #EuroVikes
— Kris Jensson (@KristferK) August 22, 2021
Sölvi Geir Ottesen.. that’s the tweet!
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) August 22, 2021