Miðvörðurinn Brynjar Ingi Bjarnason er tilbúinn til þess að verða byrjunarliðsmaður með A-landsliði Íslands fyrir næstu leiki í haust. Þetta segir Benedikt Bóas Hinriksson.
Brynjar, sem er 21 árs gamall, fór á kostum í vinattulandsleikjaglugganum sem var nýlega. Þar lék hann sína þrjá fyrstu landsleiki. Hann skoraði til að mynda í leiknum gegn Póllandi.
Miðvörðurinn hefur einnig staðið sig mjög vel í deildinni hér heima með KA. Hann hefur undanfarið verið orðaður við lið erlendis. Þar á meðal er ítalska félagið Lecce. Það er ljóst að Brynjar spilar ekki mikið lengur á Íslandi.
,,Brynjar Ingi, hafsent KA, hann er geggjaður. Hann er alltof góður í þessa deild. Ég held að ungir – og bara gamlir líka – eigi bara að horfa á hann og sjá hvernig hann spilar. Hann er sterkur, dirty, frábær á boltanum og bara klókur,“ sagði Benedikt í sjónvarpsþætti 433.is á Hringbraut þar sem hann er sérfræðingur.
Hörður Snævar Jónsson, þáttastjórnandi spurði Benedikt hvort að hann sæi hann fyrir sér sem byrjunarliðsmann í landsliðinu strax í haust.
,,Jájá, hann er alveg tilbúinn í það. Maður sér það bara“ svaraði Benedikt þá.
Hér fyrir neðan má sjá þátt 433.is í heild sinni. Þar má finna umræðuna um Brynjar Inga sem og margt, margt fleira.