Það varð slys á Wembley í Lundúnum í dag á leik Englands og Króatíu á Evrópumótinu. Áhorfandi slasaðist alvarlega er hann féll niður úr stúkunni. Sky Sports fjallar um málið.
Upplýsingar um ástand mannsins eru takmarkaðar eins og er. Talsmaður Wembley gat þó gefið Sky Sports stutta lýsingu á hvað hafði gerst.
,,Það þurfti að hlúa að áhorfendanum á staðnum. Það var svo farið með hann á sjúkrahús í alvarlegu ástandi. Við munum halda áfram að vinna með UEFA til að passa að málið sé rannsakað að fullu. Við munum halda áfram að fylgjast með stöðunni,“ sagði talsmaðurinn.
Eins og fyrr segir hafa nánari upplýsingar um slysið ekki enn komið fram.