Fjöldi kvartana hefur komið á borð BBC vegna framgöngu Gary Lineker í beinni útsendingu sem hann leiddi í kringum úrslitaleik enska bikarsins á milli Leicester og Chelsea á dögunum. Kvartanirnar eru vegna hlutdrægni hans í garð Leicester.
Lineker hefur verið stuðningsmaður Leicester síðan í barnæsku. Hann fagnaði vel og innilega og átti greinilega erfitt með að halda aftur af tárunum í leikslok þegar ljóst var að Leicester væri bikarmeistari.
Þetta fór ekki vel í alla og hafa alls 124 formlegar kvartanir borist til BBC.
,,Einstakt fyrir alla stuðningsmenn Leicester sem eru að horfa. Biðin hefur verið löng. Þetta er það sem þeir vildu. Þeir unnu auðvitað úrvalsdeildina fyrir nokkrum árum, það var stærsta kraftaverk allra tíma,“ var á meðal þess sem Lineker sagði í útsendingunni.
Hann varð svo enn tilfinningaríkari og ræddi Pabba sinn, sem er fallinn frá. Hann sagðist vonast eftir því að hann væri að horfa einhvers staðar.
,,Ég var hér fyrir 52 árum, ekki á þessum velli reyndar. Þá leið mér öðruvísi og ég hélt að mér myndi líða hræðilega aftur en VAR bjargaði deginum fyrir Leicester,“ sagði Lineker einnig. Útlit var fyrir að Chelsea hefði jafnað í lok leiks en var markið dæmt af vegna rangstöðu með hjálp VAR.
Hann hélt svo uppteknum hætti á Twitter eftir leik. ,,Ég elska fjandans VAR,“ skrifaði hann þar.