Gary Lineker, sparkspekingurinn geðugi, hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem stjórnandi umfjöllunnar um Meistaradeild Evrópu á BT Sport eftir úrslitaleik keppninnar annað kvöld. Hann ætlar að eyða næsta vetri, meðal annars, í það að elta Leicester um Evrópu ásamt sonum sínum.
Lineker, sem stýrir einnig hinum geysivinsæla markaþætti ,,Match of the Day“ á BBC, var boðinn nýr samningur hjá BT Sport en hafnaði honum.
Leicester mun leika í Evrópudeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa hafnað í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni sem er nýlokið. Lineker er harður stuðningsmaður liðsins. Hann vill hafa tíma til þess að bjóða sonum sínum með sér á leiki í Evrópukeppni.
,,Ég hef elskað að stjórna umfjöllun um bestu keppni í heimsfótboltanum og er svo stoltur af því að hafa verið hluti af frábærri umfjöllun undanfarin sex ár,“ var á meðal þess sem stóð í yfirlýsingu Lineker sem hann gaf út eftir að hafa tilkynnt um brottför sína.
,,Mig langar til þess að þakka BT Sport fyrir rausnarlegt tilboð en eftir að hafa íhugað málið mikið ef ég ákveðið að kalla þetta gott. Mér finnst vera kominn tími til þess að gera hluti sem ég hef alltaf lofað sjálfum mér að gera. Til dæmis að elta Leicester um alla Evrópu með sonum mínum (hversu mörg tækifæri fáum við til þess?)
Manchester City og Chelsea mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld klukkan 19 að íslenskum tíma.