Gianluigi Donnarumma, markvörður AC Milan, fer frá félaginu á frjálsri sölu í sumar. Paolo Maldini staðfesti þetta í dag.
Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall hefur Donnarumma verið aðalmarkvörður Milan í mörg ár og spilað rúmlega 250 leiki fyrir félagið. Á tímabilinu sem lauk nýverið hjálpaði hann liði sínu að ná sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð í fyrsta sinn í sjö ár.
,,Gigio var leiðtogi hjá okkur og oft fyrirliði. Stundum áttar fólk sig ekki á því hvað það er að vera atvinnumaður. Það þýðir að maður þarf að vera tilbúinn til þess að skipta um félag. Það er erfitt að kyngja þessu, ég geri mér grein fyrir því, en það er líka alltaf að verða erfiðara að sjá leikmenn eiga heilan feril með sama liðinu,“ var á meðal þess sem Maldini sagði eftir að hann staðfesti brottför Donnarumma.
Milan hefur þegar náð í arftaka Donnarumma. Þeir keyptu Mike Maignan, 25 ára gamlan markvörð, á dögunum frá Frakklandsmeisturum Lille.