Gareth Bale vill ekki uppljóstra hvar hann mun spila á næstu leiktíð þar sem hann segir að það muni valda óreiðu. Hann vill einbeita sér að Evrópumóti landsliða með Wales.
Bale hefur verið á láni hjá Tottenham frá Real Madrid á leiktíðinni. Hann lék síðasta leikinn fyrir félagið í gær gegn Leicester í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þar skoraði hann tvö mörk í 2-4 sigri.
Hann mun nú snúa aftur til Real en þó er talið ólíklegt að hann muni leika fleiri leiki fyrir félagið. Bale hefur gefið í skyn að hann hafi nú þegar tekið ákvörðun um framtíð sína.
,,Það þarf að gerast eftir Evrópumótið. Ég veit hvað ég er að gera en það mun bara valda óreiðu ef ég segi eitthvað,“ sagði Bale.
Hann var svo spurður út í það hvort að hann gæti gefið nánari upplýsingar um það hvenær hann muni tilkynna um framtíðaráform sín.
,,Þegar ég ákveð það. Ég er ekki að hugsa um neitt annað en Wales,“ sagði Bale þá.
Á dögunum rataði það í fréttirnar að leikmaðurinn íhugaði að hætta í knattspyrnu eftir eitt ár, þegar samningur hans við Real Madrid rennur út.