Gareth Bale, leikmaður Tottenham á láni frá Real Madrid, hefur gagnrýnt spænska fjölmiðla harðlega fyrir framkomu þeirra gegn honum og Eden Hazard, leikmanni Real.
Bale kom til Real Madrid árið 2013. Hann hefur unnið fjölda titla og skorað yfir hundrað mörk á tíma sínum þar. Þrátt fyrir það hefur hann ekki verið vinsæll hjá liðsfélögum sínum eða spænskum blaðamönnum. Hann var gagnrýndur fyrir að falla ekki vel inn í menninguna í spænsku höfuðborginni, að tala spænsku illa og að blanda lítið geði með liðsfélögum sínum. Þá er það orðið frægt hversu mikið Bale spilar golf og virtist það pirra stuðningsmenn Madrídarliðsins hversu mikill tími færi í það.
,,Ef ég fór út með fjölskyldu eða vinum þá komu 20, 30, 40 manns upp að mér og gáfu mér ekkert pláss. Þú þarft að finna staði í Madríd þar sem þú ert ekki áreittur svona mikið,“ sagði Bale við The Times.
Sjálfur segist Bale kunna ágætis spænsku. Hann vilji þó ekki tjá sig mikið við spænska fjölmiðla.
,,Ég ætla ekki að leyfa fjölmiðlum breyta lífi mínu eða því sem ég geri. Þeim líkaði örugglega minna við mig út af því. Ég samþykkti það. Ég tala nægilega góða spænsku til þess að bjarga mér og ég skil allt sem er í gangi. Ástæðan fyrir því að fjölmiðlar segja þetta er sú að ég talaði ekki við þá.“
Bale ræddi einnig Eden Hazard. Sá síðarnefndi kom til Real frá Chelsea árið 2019 og hefur ekki gengið sem skildi. Hann mætti til leiks of þungur og hefur einnig verið mikið meiddur. Hann hefur því einnig verið skotspónn í spænskum miðlum.
,,Ég hef séð þetta. Það var bókstaflega eins og hann hefði drepið alla. Þetta er bara fótbolti.“