Á vef Stjórnarráðsins er greint frá því að verulega verði dregið úr samkomutakmörkunum frá 25. maí. Á meðal þess sem fram kemur er að hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum hækkar úr 150 í 300 manns í hverju sóttvarnahólfi og veitingasala í hléi verður heimil.
Grímuskyldan gildir áfram fyrir áhorfendur á íþróttaviðburðum. Reglugerð um þessar breytingar gildir til 16. júní.
Því tekur breytingin ekki ekki gildi fyrir helgina þegar fjöldi leikja fer fram í öllum íþróttum.
Hægt er að setja upp hið minnsta tvö hólf á öllum völlum og fleiri á sumum stöðum.