Það er ólíklegt að Martin Odegaard gangi endanlega til liðs við Arsenal í sumar. Það er vegna þess að Real Madrid vill fá rúmar 60 milljónir punda fyrir leikmanninn. Don Balon greinir frá.
Norðmaðurinn kom til Arsenal á láni í janúar þar sem hann var ekki inni í myndinni hjá Zinedine Zidane, stjóra Real. Hann hefur verið virkilgea öflugur fyrir enska liðið og orðið einn af lykilmönnum þess seinni hluta tímabils.
Því miður fyrir Arsenal er ólíklegt að þeir hafi fjármagn í að reiða fram 60 milljónir punda fyrir leikmanninn í sumar. Þá sérstaklega ef liðið kemst ekki í neina Evrópukeppni. Arsenal er stigi á eftir Evrópusæti fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni og þarf að treysta á að liðin fyrir ofan misstigi sig ásamt því að klára sitt.
Það er því útlit fyrir að Odegaard snúi aftur til spænsku höfðuborgarinnar í sumar. Real Madrid liggur ekkert á með að selja hann og mun einfaldlega halda honum innan sinna raða ef ekkert ásættanlegt tilboð berst.