Lengjudeild karla fór af stað í kvöld með tveimur leikjum. Fram sigraði Víking Ólafsvík og Fjölnir lagði Þrótt Reykjavík.
Albert Hafsteinsson allt í öllu hjá Fram
Heimamenn í Fram komst fyrir strax á fyrstu mínútu í kvöld. Þá skoraði Albert Hafsteinsson af vítapunktinum. Tryggvi Snær Geirsson tvöfaldaði forystuna fyrir þá bláu aðeins þremur mínútum síðar. Þá hafði Albert átt aukaspyrnu í stöngina sem Tryggvi fylgdi eftir. Aðeins mínútu síðar var títtnefndur Albert enn og aftur á ferðinni. Þá átti hann sendingu fyrir á Fred Saraiva sem skoraði þriðja mark heimamanna. Leikurinn róaðist aðeins eftir þetta. Staðan í hálfleik 3-0.
Fred skoraði svo sitt annað mark í byrjun seinni hálfleiks. Þá hafði Alex Freyr Elísson sloppið í gegn og gat sent boltann á Fred sem var einn fyrir opnu marki og skoraði.
Víkingur Ólafsvík klóraði í bakkann með tveimur mörkum. Fyrst skoraði Kyle Douglas, leikmaður Fram, skrautlegt sjálfsmark. Harvey Willard skoraði svo seinna mark Ólsara af vítapunktinum.
Lokatölur 4-2 fyrir Fram. Góð byrjun á tímabilinu hjá þeim.
Öll mörkin í seinni hálfleik í Laugardalnum
Fjölnismenn voru sterkari í fyrri hálfleik í kvöld en heimamenn í Þrótti vörðust vel. Markalaust var í hálfleik.
Samuel George Ford kom heimamönnum yfir strax í upphafi seinni hálfleiks. Hann kom sér þá inn í lélega sendingu gestanna til baka. Guðmundur Karl Guðmundsson jafnaði metin stuttu síðar með marki eftir fyrirgjöf Orra Þórhallssonar. Fjölnir komst svo yfir þegar rúmar 20 mínútur lifðu leiks. Þá var löng aukaspyrna tekin inn á teig Þróttar sem Sigurpáll Melberg Pálsson skallai í netið. Sigurpáll innsiglaði svo sigur Fjölnis þegar um tíu mínútur voru eftir með sínu öðru marki. Hreinn Ingi Örnólfsson, leikmaður Þróttar, átti svo eftir að fá rautt spjald í lok leiks.
Lokatölur 1-3 fyrir Fjölni.