fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
433Sport

Búinn að finna ástina hjá undirfatamódeli í skugga ákæru og mögulegs fangelsisdóms

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 25. apríl 2021 09:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ryan Giggs, fyrrverandi leikmaður Manchester United og landsliðsþjálfari Wales, sást á dögunum með nýrri kærustu en Giggs hefur verið mikið í fjölmiðlum að undanförnu.

Zara Charles, 33 ára undirfatamódel, var mynduð með Giggs á göngu en hún hefur undanfarna mánuði veitt Giggs stuðning á stormasömum tímum samkvæmt heimildum Daily Mail.

Mynd: The Sun

Giggs var á dögunum ákærður fyrir líkamlegt ofbeldi gegn tveimur konum sem og andlegu ofbeldi gegn annari þeirra. Verði hann fundinn sekur, gæti hann fengið fimm ára fangelsisdóm. The Sun greindi frá.

Málið rataði í fréttirnar í dag. Giggs er sakaður um að hafa stjórnað fyrrverandi kærustu sinni í um þrjú með því að beita hana andlegu ofbeldi. Þá er hann einnig sakaður um að hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi. Ofan á þetta er talið að hann hafi beitt aðra unga konu líkamlegu ofbeldi.

Áðurnefnd stjórnun í sambandi getur lýst sér þannig að aðili beiti ofbeldi, hótunum, niðurlægingu eða öðru sem notað er til að meiða, refsa eða hræða fórnarlamb þess sem beitir þessari tegund af andlegu ofbeldi. Árið 2015 var það sett í lög að hægt sé að dæma fólk í allt að fimm ára fangelsi, gerist það sekt um slík brot. Verði Giggs fundinn sekur gæti dómur hans hljóðað upp á svo mörg ár.

Þá er ekki hægt að útiloka að Giggs verði fundinn sekur í einum af hinum ákæruliðunum. Þar gæti dómurinn verið mjög mismunandi. Sjálfur segist þessi fyrrum knattspyrnustjarna vera saklaus.

Tilkynnt var um það í dag að Giggs muni ekki stýra Wales á Evrópumóti landsliða í sumar vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þýski landsliðsmaðurinn gæti farið frítt til Arsenal

Þýski landsliðsmaðurinn gæti farið frítt til Arsenal
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Aron Einar opnar sig um ákvörðun Arnars – „Held þetta sé rétt þróun“

Aron Einar opnar sig um ákvörðun Arnars – „Held þetta sé rétt þróun“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

UEFA íhugar reglubreytingar eftir uppákomuna í gær

UEFA íhugar reglubreytingar eftir uppákomuna í gær
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Er með rosalegt tilboð á borðinu

Er með rosalegt tilboð á borðinu
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

United klárt í að taka þátt í kapphlaupinu – Þetta er verðið

United klárt í að taka þátt í kapphlaupinu – Þetta er verðið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arnar: „Mér hugnast það illa“

Arnar: „Mér hugnast það illa“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Opnar sig um falskar sögusagnir og ógeðfellt áreiti í myndbandi – „Ég titra því mig langar ekki að tala um þetta“

Opnar sig um falskar sögusagnir og ógeðfellt áreiti í myndbandi – „Ég titra því mig langar ekki að tala um þetta“