Samkvæmt spænska miðlinum Marca liggur Lionel Messi ekkert á að skrifa undir nýjan samning við Barcelona. Hann vill þá fá að vita hvort að liðið ætli sér að sækja Neymar eða Sergio Aguero í sumar. Einnig kemur fram að einbeiting Messi sé aðallega á því að vinna La Liga með liðinu í vor.
Messi samþykkti síðasta sumar að vera allavega eitt ár í viðbót hjá Barca eftir orðróma um það að hann væri á leið til Pep Guardiola í Manchester City. Samningur hans rennur þó út nú í sumar.
Talið er að Messi hafi verið ánægður með forsetaskiptin hjá Barca en Joan Laporta tók við af Josep Maria Bartomeu nýlega. Að því sögðu þá hefur leikmaðurinn hins vegar ekki enn skrifað undir nýjan samning.
Talið er að katalónska stórveldið muni bjóða leikmanninum samning til þriggja ára. Messi virðist þó ansi rólegur yfir því að skrifa undir og segir Marca að hann geti glaður beðið með það.
Messi á að hafa snætt kvöldverð með Laporta nýverið þar sem sá síðarnefndi tjáði honum það að hann myndi gera allt í sínu valdi til að sannfæra leikmanninn um að vera áfram.
Talið er að Barca muni eiga erfitt með að bjóða Messi jafngóðan samning og hann er með núna vegna fjárhagsstöðu félagsins. Óvissa er með hversi slæm fjárhagsstaðan er eins og er svo félagið veit ekki enn hvað það getur boðið argentíska snillingnum.
Messi sjálfur er sagður vera einbeittur á að vinna La Liga með Barca. Hann vill bíða með samningaviðræður.
Þá á Messi að vera afar spenntur fyrir því að fá Neymar, leikmann PSG, aftur til félagsins sem og landa sinn, Sergio Aguero, frá Manchester City.
Messi mun gera sitt besta til að vinna La Liga með Barcelona í vor. Á sama tíma er þó enginn vafi á því að hann mun fylgjast náið með gangi máli á bakvið tjöldin til þess að sjá hvort framtíð hans liggi hjá Barca eður ei.