Jose Mourinho fyrrum stjóri Tottenham hefur í heildina fengið 77,5 milljónir punda fyrir það að vera rekinn úr störfum síðustu ár. Chelsea hefur meðal annars rekið hann í tvígang.
Mourinho er sagður fá um 15 milljónir punda fyrir það að missa starfið hjá Tottenham. Hann fékk 15 milljónir punda frá Manchester United árið 2018 þegar United ákvað að reka hann.
Chelsea borgaði honum 12,5 milljónir punda fyrir að reka hann árið 2015, árið 2013 komu 17 milljónir punda í vasa hann frá Real Madrid þegar hann var rekinn.
Sex árum áður eða árið 2007 hafði Chelsea borgað honum 18 milljónir punda fyrir það eitt að reka hann.