Evrópumeistarar Lyon er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Paris Saint-Germain í dag. Lyon vann fyrri leikinn 1-0, en PSG fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Sara Björk Gunnarsdóttir er á mála hjá Lyon en hún var ekki í leikmannahópi liðsins í dag vegna meiðsla.
Lyon komst yfir strax á fjórðu mínútu með marki frá Catarina Macario en PSG jafnaði metin tuttugu mínútum síðar með marki frá Geyoro. Eftir um klukkutíma leik varð Wendie Renard, miðvörður Lyon, fyrir því óláni að skora sjálfsmark og PSG því komnar yfir í leiknum.
Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og niðurstaða einvígisins því 2-2 en PSG fer áfram í undanúrslit á fleiri útivallamörkum.
Lyon 1-2 PSG
1-0 Macario (´4)
1-1 Geyoro (´24)
1-2 Renard OG (´61)
La #TeamOL s'incline 2 à 1 (2-2 au cumulé) face au PSG et s'arrête en quart de finale d'@UWCL après 5 sacres consécutifs. 🔴🔵#OLPSG pic.twitter.com/iF9OYnBoQV
— OL Féminin (@OLfeminin) April 18, 2021