Wolfsburg tók á móti Bayern Munchen 29. umferð þýsku Bundesligunnar í dag. Bayern unnu leikinn 2-3. Musiala braut ísinn fyrir Bayern þegar stundarfjórðungur var liðinn af leiknum og Choupo-Moting tvöfaldaði forystu Bæjara um 10 mínútum síðar. Weghorst minnkaði muninn á 35. mínútu en Musiala var aftur á ferðinni aðeins tveimur mínútum síðar og jók aftur forskot Bayern.
Leikmenn Wolfsburg minnkuðu muninn aftur á 55. mínútu þegar Philipp kom knettinum í markið. Þar við sat og styrkir Bayern því stöðu sína á toppi deildarinnar. Wolfsburg er í 3. sæti deildarinnar.
Alfreð Finnbogason kom loksins við sögu í þýsku Bundesligunni er Augsburg tók á móti Bielefeld. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Alfreð kom inná á 65. mínútu en náði ekki að brjóta ísinn fyrir heimamenn. Augsburg er í 11. sæti deildarinnar með 33 stig.
Hér að neðan má sjá úrslit dagsins úr þýsku Bundesligunni.
Wolfsburg 2 -3 Bayern
0-1 Musiala (´15)
0-2 Choupo-Moting (´24)
1-2 Weghorst (´35)
1-3 Musiala (´37)
2-3 Philipp (´54)
Augsburg 0 – 0 Bielefeld
Freiburg 4 – 0 Schalke
1-0 Höler (´7)
2-0 Sallai (´22)
3-0 Gunter (´50)
4-0 Gunter (´74)
M´gladbach 3 – 0 Frankfurt
1-0 Ginter (´10)
2-0 Hofmann (´60)
3-0 Bensebaini (´67)
Union Berlin 2 -1 Stuttgart
1-0 Prömel (´20)
2-0 Musa (´43)
2-1 Förster (´49)